Skoðun

Fagnaðar­efni

Björn B. Björnsson skrifar

Þau tíðindi urðu á nýafstöðnum fundi Bandalags íslenskra listamanna að Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra lýsti því yfir að viji hennar stæði til þess að snúa við þeirri stefnu sem fylgt hefur verið í málefnum kvikmyndagerðar á Íslandi - sem hefur verið að skera mun meira niður þar en í nokkurri annarri listgrein.

Katrín sagðist vilja gera nýjan samning við greinina í stað þess samnings sem rann út á árinu 2010 og enn vantar 35% upp á að stjórnvöld efni.

Þetta er fagnaðarefni fyrir alla Íslendinga, því kvikmyndagerðin gerir meira en skila til baka þeim fjármunum sem ríkið setur í kvikmyndasjóði, eins og sýnt hefur verið fram á með óyggjandi hætti.

Þetta er fagnaðarefni fyrir íslenska menningu því við fáum í kjölfarið fleiri leiknar sjónvarpsþáttaraðir, heimildarmyndir og kvikmyndir, á íslensku, sem er mikilvægt fyrir sjálfsmynd okkar og unga fólksins sem hér vex úr grasi.

Þetta er fagnaðarefni fyrir landsbyggðina sem nýtur sama aðgengis að þessu efni og höfuðborgarbúar því allt er það sýnt í sjónvarpi.

Þetta er fagnaðarefni fyrir ferðaþjónustuna því kvikmyndagerðin dregur hingað 10-20% allra ferðamanna sem til landsins koma (samkvæmt rannsóknum þar sem slíkt hefur verið kannað), auk þess að kaupa mikla þjónustu af fyrirtækjum í ferðaiðnaði.

Þetta er fagnaðarefni fyrir kvikmyndagerðarmenn en ekki síður fyrir aðrar stéttir skapandi greina, því kvikmyndagerðin nýtir krafta margra þeirra,eins og leikara, rithöfunda, búninga- og leikmyndahönnuða, tónskálda og hljóðfæraleikara.

Þetta er fagnaðarefni fyrir atvinnuuppbyggingu á Íslandi því í kvikmyndagerðinni eigum við sennilega mestu tækifærin til vaxtar í hinum skapandi greinum, sem við vitum nú að fela í sér mikil verðmæti, menningarleg og fjárhagsleg.

Hér skiptir því miklu að hugur fylgi máli og að hinn nýi samningur verði ekki plástur á svöðusár heldur marki endurreisn og uppbyggingu atvinnugreinar sem byggir á hugviti okkar og handverki - og skilar íslenskum menningarafurðum sem eiga markað um allan heim.

Staðreyndin er að stefna þessarar ríkisstjórnar í málefnum greinarinnar er mesta áfall sem íslenskur kvikmyndaiðnaður hefur orðið fyrir frá upphafi - og það þarf mikið til að snúa þeirri staðreynd við.

Það verður öllum Íslendingum mikið fagnaðarefni ef nú tekst að hindra að sá verði dómur sögunnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×