Skoðun

Ábyrgðin er okkar

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Þjóðin hafði ekki úr miklu að moða árið 1936. Kreppunni miklu var varla lokið, fjöldi atvinnu- og húsnæðislausra hafði aldrei verið meiri. Fjárþörf ríkissjóðs var mikil. Gæfa íslensku þjóðarinnar var hins vegar sú að þá sátu framsýnir menn á þingi og eftir nokkurt þref samþykktu þeir að koma á fót kerfi almannatrygginga. Með því var viðurkennt að samfélagið sem heild bæri ábyrgð á því að framfleyta þeim sem ekki höfðu tök á því sjálfir. Fólk sem lenti í slysi, varð veikt eða missti vinnu fékk bætur. Til að sjá um útrgeiðsluna var Tryggingastofnun Íslands komið á fót.

Mjór er mikils vísir og segja má að þarna hafi grunnurinn að velferðarkerfinu verið lagður. Á því hefur verið gerður fjöldi endurbóta, það verið úttvíkað og bætt með það fyrir augum að ná til sem flestra. Grunnhugsunin er hins vegar enn sú sama; að þeir sem einhverra hluta vegna geta ekki séð sér farborða, fái við það aðstoð. Það er á ábyrgð samfélagsins alls.

Enn á ný steðja efnahagsþrengingar að þjóðinni og engum dylst að fjárþörf ríkissjóðs er gríðarlega mikil. Sú fjárþörf er tímabundin; íslenskt samfélag mun rísa upp úr efnahagslægðinni á ný. Þetta hafa verið erfiðir tímar og þeir verða það áfram. Víða þarf að þrengja sultarólina og margir munu búa við kröpp kjör. Við slíkar aðstæður er það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að öryggisnet velferðarkerfisins sé þéttriðið. Þetta skildi íslenskt launafólk í kreppunni miklu og því tókst að sannfæra stjórnvöld um hið sama.

Ýmislegt verður að breytast í íslensku samfélagi, það er ljóst. Einhversstaðar þarf að ná í það fé sem vantar upp á, eða spara útgjöld á móti. Það væri hins vegar þyngra en tárum tæki ef við, í upphafi 21. aldar, eyðileggðum það starf sem afar okkar og ömmur lögðu á sig við mun verri kjör á fjórða áratugnum.

Fjárlagafrumvarpið 2011 kemur nú til annarrar umræðu. Þingmenn hafa það hlutverk að verja velferðarkerfið. Þeirra ábyrgð er að tryggja að fjárlögin höggvi ekki að rótum þess. Þá ábyrgð berum við einnig sem þjóð.

 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×