Skoðun

Hvernig samfélag viljum við sjá?

Um þessar mundir eru tvö ár liðin frá því að bankakerfi landsins hrundi og efnahagskerfið í kjölfarið. Á þessum tveimur árum hefur vissulega margt áunnist, en allt of margt á þó eftir að gera. Mikilvægast af öllu er að þjóðin taki höndum saman og horfi til framtíðar; til þess samfélags sem við viljum búa við hér á landi. Uppgjör og ásakanir eru eðlileg viðbrögð við slíku áfalli sem íslensk þjóð varð fyrir. Nú, tveimur árum eftir hrun, á slíkt uppgjör að eiga sér stað hjá þar til bærum aðilum. Við hin eigum að snúa okkur að því að endurreisa Ísland.

Og hvernig þjóðfélag viljum við sjá? Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um það má meðal annars sjá í fjárlagafrumvarpinu og þær eru sláandi. Vegið er að velferðarkerfinu, fjöreggi þjóðarinnar. Enginn skyldi velkjast í vafa um að fjárþörf ríkisins er gríðarlega mikil og öll þurfum við að færa fórnir og taka á okkur byrðar til að mæta henni. Ákvarðanir í dag hafa hins vegar áhrif á það samfélag sem við byggjum börnunum okkar.

Aðgangur almennings að velferðarkerfinu, óháð efnahag og aðstæðum, er hornsteinninn í því velferðarsamfélagi sem launafólk hefur byggt upp hér á landi síðustu áratugi. Núverandi fjárþörf má ekki verða til þess að vegið sé að rótum þess velferðarkerfis.

Í þeim óhjákvæmilega niðurskurði sem framundan er verður að líta til þess að vinna ekki skemmdir á velferðarkerfinu. Frekar á að fara hægar í sakirnar og greiða niður á lengri tíma, eða að leita annarra leiða, svo sem eins og í gegnum skattkerfið. BSRB hefur til að mynda lagt fram tillögur um frekari hækkun á fjármagnstekjuskatti en fyrirhuguð er, þannig að ekki þurfi að skerða framlög til fæðingarorlofssjóðs og barna- og vaxtabætur.

Velferðarkerfið er ekki tölur á blaði sem hægt er að færa til að vild án afleiðinga. Velferðarkerfið er fólk af holdi og blóði, þjónusta þegnanna og öryggisnet þjóðarinnar. Verði niðurskurðarhnífurinn reiddur of hátt til höggs er hætta á því að óbætanlegur skaði verði unninn á uppbyggingarstarfi genginna kynslóða, til skaða fyrir komandi kynslóðir.

Horfum fram á veginn og byggjum upp réttlátt þjóðfélag nýrra gilda samábyrgðar og jöfnuðar. Til þess að það sjá mögulegt, þurfa grunnstoðir velferðarsamfélagsins að standa óhaggaðar. Það er verkefni okkar allra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×