Skoðun

Fjármögnun Búðarhálsvirkjunar

Landsvirkjun virðist ganga treglega að semja við erlenda banka um að fjármagna byggingu Búðarhálsvirkjunar. Það bendir til að erlendu bankarnir reyni að knýja fram óeðlilega háa vexti vegna meintrar slæmrar fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og þá líklega vegna vanda eigandans. Hins vegar er til miklu betri leið fyrir Íslendinga.

Lífeyrissjóðirnir eiga nú að sögn um 450 milljarða í erlendum gjaldeyri sem mun líklega ekki ávaxtast vel næstu misserin, a.m.k. ekki í íslenskum krónum. Gengi erlendra gjaldmiðla mun líklega lækka næstu misserin og veruleg óvissa er á erlendum mörkuðum. Ekki er þó fýsilegt fyrir lífeyrissjóði að flytja þetta fé til landsins þar sem fjárfestingarmöguleikar hér eru mjög takmarkaðir og óvissir.

Ég legg því til að lífeyrissjóðirnir kaupi Blönduvirkjun af Landsvirkjun og borgi fyrir í erlendum gjaldeyri. Landsvirkjun noti söluverðið til að fjármagna Búðarhálsvirkjun. Lífeyrissjóðirnir fengju afsal fyrir virkjuninni en gerðu samning til t.d. 15 ára við Landsvirkjun um að reka virkjunina og kaupa af henni orku á umsömdu verði sem tryggði viðunandi ávöxtun. Að 15 árum liðnum hefði Landsvirkjun forkaupsrétt á markaðsvirði en þá mun orkuverð væntanlega hafa hækkað umtalsvert, jafnvel margfaldast og þar með söluverð virkjunarinnar einnig.

Þetta tryggði góða og örugga langtímaávöxtun lífeyrissjóðanna, og hjálpaði Landsvirkjun við að byggja Búðarhálsvirkjun og endurfjármagna sig næstu misserin þar sem söluverð Blönduvirkjunar yrði sennilega talsvert hærra en byggingakostnaður Búðarhálsvirkjunar.

Söluverð Blönduvirkjunar tæki mið af endurstofnverði sem væri hagstætt fyrir lífeyrissjóðina miðað við að greiða í erlendum gjaldmiðli þar sem tæpur helmingur byggingakostnaðar er í íslenskum krónum. Þó að allt hryndi hér aftur og aftur mun orkuver sem framleiðir síendurnýjaða græna orku alltaf vera gulls ígildi og ein arðsamasta fjárfesting sem völ er á a.m.k. næstu áratugina. Sá eini sem gæti tapað á viðskiptunum er Landsvirkjun sem kynni að tapa af óvissum ávinningi af verðmætaaukningu Blönduvirkjunar næstu 15 árin.

Það ætti þó ekki að skipta öllu máli þar sem allar aðrar virkjanir Landsvirkjunar hafa þá einnig hækkað í verði. Eigendur Landsvirkjunar eru hinir sömu og lífeyrissjóðanna, þ.e.a.s. þjóðin, svo að litlu skiptir hvar hagnaðurinn liggur. Jafnframt má benda á sem rök með þessu að vextir af lánunum sitja eftir hérlendis.

Ég vona að stjórnendur lífeyrissjóðanna og Landsvirkjun taki nú til hendi og lögum verði breytt, ef með þarf, þannig að þetta gangi fljótt fram. Það yrði mun betri fjárfesting fyrir lífeyrissjóðina en að bjarga bönkunum með því að kaupa byggingavöruverslanir sem hafa haldið uppi háu verði og hindrað erlenda samkeppni frá aðilum sem hafa miklu betri forsendur til að selja byggingavörur ódýrt.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×