Skoðun

Góðar konur

Eygló Harðardóttir skrifar

Í Frá degi til dags í Fréttablaðinu í gær var gerð athugasemd við grein sem ég skrifaði um ágæti frjálsra félagasamtaka og mikilvægi þess að skattleggja þau ekki um of. Þar var dregið í efa að Kvenfélagasamband Íslands væri gott dæmi um frjáls félagasamtök „sem snerta líf okkar allra" og því vil ég koma á framfæri frekari upplýsingum um ágæti kvenfélaganna.

Kvenfélagasambandið er regnhlífarsamtök fyrir 160 kvenfélög og 17 héraðssambönd og fagnar 80 ára afmæli sínu í ár. Á tímabilinu 1995-2005 gáfu kvenfélög um 500 milljónir króna, eða um 50 milljónir árlega, til heilbrigðisstofnana. Þar eru ekki talin með framlög Kvenfélagsins Hringsins. Hringurinn hefur verið einn stærsti einstaki styrktaraðili Barnaspítala Hringsins og lyfti þar grettistaki við nýbyggingu spítalans.

Önnur verkefni sem Hringskonur hafa stutt eru m.a. barna- og unglingageðdeild Landspítala og Sjónarhóll, ráðgjafarmiðstöð barna með sérþarfir.

Heilbrigðisstofnunin Í Vestmannaeyjum, minni heimabyggð, væri væntanlega hvorki fugl né fiskur tæknilega eða tækjalega séð ef ekki væri fyrir góðgerðar- og líknarfélög, einstaklinga og fyrirtæki sem stutt hafa við stofnunina og er þar Kvenfélagið Líkn fremst meðal jafningja. Sama mætti segja um flestar heilbrigðisstofnanir á landinu og veit ég ekki betur en flestir Íslendingar þurfi einhvern tímann á lífsleiðinni að leita til heilbrigðisþjónustunnar.

Auk alls þessa hafa kvenfélagskonur prjónað húfur sem allir nýburar fá að gjöf, og eru þær í ár um 5.000.

Þannig held ég að Kvenfélagasambandið og kvenfélagskonur snerti líf allra Íslendinga í gegnum gjafir, góðgerðarstörf og fjáröflun þar sem þær standa fyrir erfidrykkjum, sölu á jóla- og minningarkortum, sölu á bakkelsi og hannyrðum og fleiru.

Eflaust gætu þær flaggað þessum verkum sínum betur, en sumir vilja einfaldlega vinna sín góðverk í hljóði.

Það er sjálfsagt að gera athugasemd við störf okkar stjórnmálamanna, en ég tel að Kvenfélagasambandið og hinar góðu kvenfélagskonur þess eigi ekki skilið að vinna þeirra sé ekki metin að verðleikum af okkur öllum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×