Skoðun

Af hverju þarf niðurskurð?

Árni Páll Árnason skrifar
Nýlega kynnti ríkisstjórnin fjárlagafrumvarp þar sem gert er ráð fyrir miklum samdrætti í útgjöldum. Í kjölfarið hafa margir velt því fyrir sér hvort ástæða sé til að ganga svo langt í niðurskurði ríkisútgjalda. Jafnvel hafa stigið fram lukkuriddarar sem segja enga þörf á niðurskurði og varla heldur á skattahækkunum. Eina sem þurfi sé aukin atvinna og veltuaukning henni samfara.

Vandinn er því miður stærri en svo að við leysum hann með aukinni veltu. Við reddum okkur ekki úr vandanum með nýrri stórvirkjun og álveri. Útgjöld ríkisins eru meiri en tekjurnar standa undir. Markmið okkar er að ná jafnvægi í ríkisútgjöldum, óháð hagsveiflu. Ef velta eykst vegna nýrrar fjárfestingar eru það að sjálfsögðu góð tíðindi, en þau koma ekki í veg fyrir þörf á niðurskurði ríkisútgjalda. Afkomubati vegna hagsveiflu telst ekki með í þeirri aðlögun sem nú stendur yfir. Ef vel árar á að safna í hlöðu. Við getum nefnilega ekki haldið áfram að reikna með eilífu blíðviðri. Það er ekki lengur árið 2007.

Í aðlögun útgjalda að tekjum skiptir miklu að forgangsraða. Við stundum ekki flatan niðurskurð. Uppsafnaður niðurskurður í yfirstjórn ríkisins nemur 17% í lok þessa árs, en heildarniðurskurður í fjárveitingum til þjónustu við fatlaða er 2,6%. Tillögur um endurskipulagningu heilbrigðisþjónustu eru líka skynsamleg leið til að nýta fjármuni betur, okkur öllum til hagsbóta. Ekki verður komist hjá því að ná þeim sparnaði sem að var stefnt með aðgerðunum þótt við gefum okkur kannski eitthvað lengri tíma til þess, eins og heilbrigðisráðherra hefur gefið ádrátt um.

Það er aldrei auðvelt að breyta halla upp á nærri 10% af ríkisútgjöldum í afgang á þremur árum. Þess vegna hafa ríkisstjórnir undanfarinna ára fremur kosið að bæta í útgjöld og forðast erfiðar ákvarðanir um forgangsröðun. Það verður ekki gert lengur. Á fjárlögum ársins 2010 er næst stærsti útgjaldaliður ríkisins vaxtagjöld. Við greiðum meira í vexti en til allrar heilbrigðisþjónustu í landinu. Við getum ekki lifað áfram um efni fram.






Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×