Tíska og hönnun

Íslenskur nemi í úrslitum í hönnunarkeppni

Hrefna Kristín Sigurðardóttir er komin í úrslit í hönnunarkeppni B4BC.
Hrefna Kristín Sigurðardóttir er komin í úrslit í hönnunarkeppni B4BC.

Hrefna Kristín Sigurðardóttir er komin í tíu manna úrslit í hönnunarsamkeppni, B4BC (Boarding for Breast Cancer), til styrktar lækningum gegn brjóstakrabbameini.

Nú stendur yfir netkosning í umræddri keppni þar sem hægt er að kjósa bolinn sem hún hannaði. Sjá nánar hér.

Við höfðum samband við Hrefnu til að forvitnast aðeins um hana en hún býr í Orlando.

„Já ég er búin að búa erlendis í þó nokkur ár og er að læra fatahönnun. Ég er lærð frá FIDM „The fashion Institute of Design" í Kaliforníu og núna er ég að klára BFA „Fashion Design and Merchandising" í IADT Orlando, „International Academy of Design and Technology"," útskýrir hún spurð út í námið.

„Við fáum alltaf tækifæri í skólanum að taka þátt í tískusýningum og hönnunarkeppnum. Mér fannst B4BC eda Boarding for Breast Cancer skemmtileg keppni og vildi endilega taka þátt fyrir svona gott málefni. Síðan hannaði ég konuna inn í Breast cancer borðann og setti hana á bretti til að tengja B4BC inn í þetta allt saman."

„Þetta verður, held ég, í fimm daga eða til tuttugasta og fyrsta. Þá getið þið kosið okkar hönnun og mín er númer #4 og nafnið mitt er undir. Allir þátttakendur hanna þetta í Adobe Illustrator," segir [email protected]

Kjóstu bolinn hennar Hrefnu hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.