Skoðun

Stein­grímur skattakrækir

Eygló Harðardóttir skrifar

Eygló Harðardóttir skrifar um skatta.

Um áramótin verður tekið upp nýtt skattkerfi með þremur þrepum. Þetta eru mestu breytingar sem gerðar hafa verið á tekjuskattskerfinu frá 1988, þegar staðgreiðslan var innleidd. En þar lýkur samlíkingunni.

Árið 1988 var ætlunin að einfalda tekjuskattskerfið. Tekin var upp ein skattprósenta með háum persónuafslætti í stað flókins kerfis frádráttarliða. Í ár virðist ætlunin að flækja tekjuskattskerfið á ný. Nú verða notaðar þrjár skattprósentur og verðtrygging persónuafsláttar afnumin en allri ábyrgð og kostnaði vegna kerfisins verður varpað yfir á almenning og fyrir­tæki.

Breytingarnar 1988 voru mörg ár í undirbúningi og voru unnar í miklu samstarfi við alla hagsmunaaðila. Ríkisstjórn og Alþingi gáfu stofnunum og fyrirtækjum tæpt ár til að innleiða breytingarnar frá því lögin voru samþykkt og þar til þau tóku gildi. Nú er undirbúningur lítill og samráð við hagsmunaaðila nánast ekkert. Frumvarpið kom fram í nóvember og lögin taka gildi mánuði seinna. Þetta sleifarlag er reyndar hefðbundið vinnulag hjá þessari ríkisstjórn.

Árið 1988 voru breytingarnar kynntar á fjölda funda og með sérstakri auglýsingaherferð. Nú er látið duga að senda eina fréttatilkynningu á Þorláksmessu. Almenningur, sem vart gerir sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem hann mun taka á eigin skattgreiðslum, gat því kynnt sér málið yfir skötu eða í jólagjafainnkaupunum.

Sérfræðingar hafa bent á að breytingarnar á tekjuskattskerfinu snúist ekki um tekjuöflun ríkissjóðs eða jöfnun byrða. Hægt væri að ná sömu áhrifum með því að hækka persónuafsláttinn í 58.500 kr. og tekjuskattsprósentuna í 42,8%.

Fjármálaráðherra segir þetta norræna velferð. Skattkerfið er vissulega norrænt, en velferðina vantar. Þrepaskipt skattkerfi er nefnilega aðeins lítill hluti hins norræna velferðarkerfis. Hin raunverulega velferð lætur hins vegar á sér standa. Því eru þetta aðeins vanhugsaðar og illa útfærðar skattahækkanir sem fjármálaráðherra hefur dreymt um meðan hann beið þess að hans tími kæmi. Maður hefði haldið að eftir alla biðina yrði Skattakrækir betur undirbúinn.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×