Skoðun

Í tilefni afmælis

Ellert B. Schram skrifar
Í dag, tíunda október, tek ég enn einu sinni upp á því að eiga afmæli. Það sjötugasta, hvorki meira né minna og enda þótt það þyki sumum hár aldur, þá er ekkert annað í kortunum en taka því. Annars væri ég dauður!

Það kann að þykja óvanalegt uppátæki að skrifa blaðagrein í tilefni af eigin afmæli en það er þó alténd skárra heldur en að semja minningargrein um sjálfan sig! Ekki það að ég taki mér penna í hönd til að skrifa um mig lofmæli eða afrekasögu. Það bíður betri tíma. Nei, tilefni þessarar greinar er fyrst og fremst að koma á framfæri þakklæti til alls þess samferðafólks sem ég hef mætt á þessari sjötíu ára lífsleið minni. Ég hef nefnilega verið svo heppinn á þessari skemmtilegu vegferð, að eiga þess kost að kynnast, starfa með, skemmta mér með og jafnvel rífast við mann og annan, sem hefur verið dásamlegur þverskurður af fólki eins og það gerist best.

Í skólanum í gamla daga, fótboltanum, lögfræðinni, blaðamennskunni, embættisstörfum, þingmennsku, stjórnmálaflokkunum, á golfvellinum, í fjölskyldunni og forystu allskyns félagasamtaka hef ég átt því láni að fagna að kynnast konum og körlum af öllum stærðum og gerðum, sem hafa glatt mitt hjarta og kennt mér svo margt. Ég hélt lengi að ég væri útvalinn og einstök guðsgjöf, einn og sér, en ég hef fyrir löngu áttað mig á því, að manneskjurnar, hver um sig, eru allar guðsgjafir og í rauninni engin annarri merkilegri. En merkilega merkilegar samt. Og fyrir vikið hef ég tröllatrú á framtíð hins íslenska samfélags.

Nú stæði auðvitað upp á mig, á þessum tímamótum, að bjóða öllu þessu fólki til veislu og láta það syngja afmælissönginn og hrópa húrra fyrir mér. Mikið væri það gaman að sjá ykkur öll.En þá þyrftu gestirnir að kaupa gjafir og blóm, sem ég þarf ekkert á að halda. Bæði á ég nóg af veraldlegum eignum og svo væri það sennilega stílbrot, ekki satt, í miðri kreppunni.

Af mér er það að frétta að ég er enn að leita að steininum helga, er við hestaheilsu og nokkuð ern miðað við allt sem gengið hefur á um dagana. Ég er enn í farsælu hjónabandi með Ágústu, sem segir meira um hana og ágæti hennar, heldur en mig. Og öll börnin sjö sýna mér væntumþykju og meiri virðingu en ég á skilið.

En síðast en ekki síst vil ég sem sagt nota þennan afmælisdag minn til að koma kveðjum til allra þeirra sem hafa haft saman við mig að sælda á gengnum áratugum og gefið mér trú og sannfæringu fyrir því lögmáli að lífið eru skin og skúrir, flóð og fjara, sorg og gleði, hlátur og grátur, vor og haust, upp og niður, upp og niður. Sól sest, sól rís. Sem þýðir það eitt að upp úr kreppunni munum við rísa og bjartir dagar munu bíða okkar áður en um langt líður.

Með bestu afmælis- og baráttukveðjum.

Höfundur er kominn á áttræðisaldur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×