Skoðun

Veröldin vill samning sem heldur

Í dag, 12. desember, klukkan 17.30, mun Íslandsdeild Attac-samtakanna, í samvinnu við Náttúruverndarsamtök Íslands og netsamfélagið Avaaz.org, standa fyrir kertaljósavöku á Lækjartorgi, í Reykjavík. Tilefnið er loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem þjóðarleiðtogar heimsins munu freista þess að komast að samkomulagi um aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum.

Samskonar kertaljósavökur hafa verið skipulagðar um allan heim, og hafa félagasamtök og einstaklingar í meira en 130 löndum hlýtt kallinu. Krafa okkar er skýr: Sanngjarnt, metnaðarfullt, lagalega bindandi samkomulag verður að nást, veröldin krefst samnings sem heldur!

Rannsóknir vísindamanna sýna með óyggjandi hætti að styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti jarðar hefur aukist frá upphafi iðnbyltingarinnar á átjándu öld, en þó sérstaklega á undanförnum áratugum. Orsök aukningarinnar eru athafnir okkar mannanna, brennsla olíu og kola. Vísindafólk er á einu máli um að aukinn styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu leiði til hlýnunar jarðar. Af síðustu fjórtán árum hafa enda ellefu verið hin heitustu síðan mælingar hófust.

Haldi styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu áfram að aukast án þess að nokkuð sé að gert mun það leiða til stórkostlegra breytinga á loftslagi jarðarinnar, bráðnunar jökla og íshellu heimskautanna og þar með hækkunar sjávarborðs, og óafturkræfra breytinga á vistkerfi jarðarinnar.

Fátækustu systkin okkar á suðurhveli jarðar, sem þola skort og búa við erfið skilyrði, eru í mikilli hættu. Vistkerfi margra þróunarlanda eru nú þegar mjög brothætt. Í Sahelbeltinu, þar sem Saharaeyðimörkin hefur verið að færa sig stöðugt sunnar, geta jafnvel tiltölulega smávægilegar loftslagsbreytingar þýtt uppskerubrest, þurrka og uppblástur. Í löndum Suðaustur-Asíu hafa loftslagsbreytingar síðustu ára leitt til stóraukinnar tíðni hitabeltisstorma sem hafa eyðilagt uppskeru og vatnsból, og á kóraleyjum Indlandshafs getur mjög lítil hækkun sjávarborðs þýtt að heilu eyjarnar fara á kaf.

Þessi lönd skortir fé til þess að grípa til aðgerða sem gætu unnið gegn afleiðingum loftslagbreytinga. Það dylst engum að Vesturlönd bera meginábyrgð á aukningu gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti jarðar, og það getur varla dulist nokkurri manneskju að íbúum hinna ríku Vesturlanda ber þvi siðferðileg skylda að koma fátækustu löndum jarðar til hjálpar.

Baráttufólk og sérfræðingar í loftslagsmálum fullyrða að raunverulegur samningur um samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda verði að innihalda eftirfarandi atriði:

a) Sanngirni – Tryggja verður 200 milljarða Bandaríkjadollara til að fjármagna aðgerðir í fátækum ríkjum til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga.

b) Metnað – Stefnt verði að því að útblástur koltvísýrings nái hámarki eigi síðar en árið 2015 og að styrkur hans í andrúmsloftinu verði þegar fram í sækir ekki meiri en 350 ppm (er nú 384 ppm).

c) Lagalega bindandi – Samningur verður að binda ríki heims að þjóðarrétti.

Okkur hefur verið falið að varðveita hið einstaka kraftaverk sem sköpunarverkið er fyrir komandi kynslóðir, og okkur ber skylda að axla þá ábyrgð af ánægju og dugnaði, því afkomendur okkar eiga sama rétt á ávöxtum jarðarinnar og við.

Sjáumst á Lækjartorgi.

Höfundur skrifar fyrir hönd Íslandsdeildar Attac.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×