Skoðun

Ríkisstjórnin endurskoði áherslur í atvinnumálum

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
BSRB átti aðild að stöðugleika­sáttmálanum sem aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um ásamt stjórnvöldum og sveitar­félögum síðastliðið sumar. Bandalagið studdi - og styður enn - það meginmarkmið sáttmálans að verja kjör launafólks og tryggja fulla atvinnu. Hins vegar er ekki sama hvernig að verki er staðið. Það skiptir að sjálfsögðu höfuðmáli hvernig þetta er gert, hverjar áherslurnar eru við atvinnusköpun og hvernig stjórnvöld bera sig að.

Á nýafstöðnu þingi BSRB var lögð rík áhersla á að standa vörð um almannaþjónustuna. Bent var á að á samdráttar­tímum væri meiri þörf en nokkru sinni fyrir öflugt velferðarkerfi. Göt á öryggisneti velferðarþjónustunnar geta hæglega valdið óbætanlegu tjóni, ekki eingöngu fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga heldur samfélagið allt. Frændur okkar Finnar sem gengu í gegnum djúpa kreppu á tíunda áratug síðustu aldar hafa varað alvarlega við því að skera um of niður í velferðarþjónustu á samdráttartímum - og ekki að ástæðulausu. Rannsóknir þar í landi hafa nefnilega sýnt að enn í dag er samfélagið að súpa seyðið af of kröppum niðurskurði í velferðarþjónustunni á þessum tíma.

Þessi atriði komu öll til skoðunar á þingi BSRB og varð niðurstaðan sú að þingið fól forystu bandalagsins að beita sér af alefli til að verja störf í almannaþjónustunni í þeim niðurskurði sem hafinn er. Þing bandalagsins var ósátt við þau áform sem birtast í stöðugleikasáttmálanum þar sem aðaláhersla er á uppbyggingu hefðbundinna karlastarfa á sama tíma og áformað er að skera ótæpilega niður á sviði heilbrigðis-, félags- og menntamála.

Ein hlið á þessum málum er sú að niðurskurður í samfélags­þjónustunni bitnar fremur á konum en körlum því í velferðarkerfinu eru kvennastörf í yfirgnæfandi meirihluta. Það er öfugsnúið að byrja á því að fækka kvennastörfum en setjast að því búnu yfir úrræði sem miða fyrst og fremst að því að skapa störf fyrir karla, að þeim ólöstuðum að sjálfsögðu. Þess má geta að á þingi BSRB kom fram gagnrýni á þessa stefnumörkun og ekkert síður frá hinum svokölluðu karlastéttum en kvennastéttum.

Allir stjórnmálaflokkar hafa sagst vilja standa vörð um jafnrétti kynjanna í atvinnumálum sem öðru. Þessi framganga er hins vegar ekki í þeim anda. Stjórnmálamenn verða að vera sjálfum sér samkvæmir í orðum og athöfnum. Þetta er nokkuð sem núverandi ríkisstjórn verður að taka til sín. Mér virðist því miður skorta á að samræmi sé í fyrirheitum hennar annars vegar og gjörðum hins vegar.

Þegar þeir þættir sem hér hafa verið raktir eru teknir saman - mikilvægi velferðarþjónustunnar á krepputímum á annan bóginn og svo jafnrétti kynjanna í atvinnumálum á hinn bóginn - er augljóst að ríkisstjórnin verður að endurskoða áherslur í fjárlagagerðinni fyrir komandi ár.

Höfundur er formaður BSRB.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×