Skoðun

Nýsköpun varðar veginn

Efnahagshrunið hefur með heldur óþægilegum hætti kennt okkur mikilvægi þess að marka og framfylgja efnahagsstefnu til lengri tíma. Auk þess að sporna við óhóflegum lántökum, halda verðbólgu í skefjum, viðhalda stöðugum gjaldmiðli og lágum vöxtum þarf slík stefna að stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi. Þannig eykst sveigjanleiki hagkerfisins og auðveldara verður að bæta þann skaða sem orðið hefur sem og að bregðast við þeim áföllum sem kunna að skella á okkur í framtíðinni.

Veturinn fram undan verður erfiður en þegar horft er lengra fram veginn er ljóst að þar liggja mörg tækifæri sem geta, ef þau eru nýtt á réttan hátt, stuðlað að sterkara og sjálfbæru hagkerfi. Þrátt fyrir að mikil áhersla sé nú á stórframkvæmdir í umræðu um efnahags- og atvinnuuppbyggingu er ljóst að til lengri tíma litið skipta aðrir hlutir meira máli.

Það er almennt viðurkennt á meðal hagfræðinga að nýsköpun skiptir sköpum þegar kemur að því að auka velferð almennings, fjölga störfum og auka samkeppnishæfni landa. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs og þar er nýsköpun lykilatriði. Þannig sýna kannanir að vel helmingur af samanlagðri þjóðarframleiðslu Evrópulanda kemur frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Allt að 70% nýrra starfa í hinu almenna atvinnulífi verða til í nýjum smáfyrirtækjum eða litlum eða meðalstórum fyrirtækjum í vexti.

Til þess að nýsköpun geti þrifist og dafnað þarf að skapa þeim sem að henni starfa góð skilyrði. Í þeim tilgangi hafa nú verið lögð fram frumvörp á Alþingi sem ætlað er að bæta starfsumhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja. Frumvörpin fela í sér lagalega umgjörð um nýsköpunarstarfsemi og breytingu á skattalegum atriðum til að skapa hvata fyrir nýsköpun og þróun í bæði nýjum og rótgrónum fyrirtækjum. Vonir standa til að af leiði umtalsverð fjölgun starfa við rannsóknir og þróunarstarf innan íslenskra fyrirtækja.

Allir þeir er þekkja til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi vita að ótal hindranir eru í vegi fyrir því að árangur náist jafnvel þó að sú hugmynd sem lagt er af stað með líti vænlega út. Það er einlæg von mín að með þessum aðgerðum sé ríkisstjórn og Alþingi að koma þannig til móts við frumkvöðlastarfsemi að verulegur árangur náist. Ef vel tekst til mun kraftmikil nýsköpun varða veginn við endurreisn íslensks efnahagslífs og leggja grunn að fjölgun starfa og stöðugu og framsæknu hagkerfi til langrar framtíðar. Oft var þörf en nú er nauðsyn.

Höfundur er fjármálaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×