Skoðun

Aðgerðir ráðast af skynsemi og nauðsyn

Við lifum á athyglisverðum tímum, segir einhvers staðar, og víst er að það á vel við um síðustu daga, vikur og mánuði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Nýir kaflar í heimssögu viðskiptanna eru ritaðir á hverjum degi, stórar og öflugar stofnanir riða til falls, aðrar hefur þegar þrotið örendi. Hver hefði trúað því að stofnun á borð við Lehman Brothers yrði gjaldþrota? Banki sem í ríflega hundrað ár hefur lifað kreppur og heimsstyrjaldir en er stærsta fórnarlamb undirmálslánakreppunnar til þessa. Markaðurinn skýrði frá því á forsíðu Fréttablaðsins í gær að erfiðleikar í rekstri margra af stærstu fjármálafyrirtækjum heims væru líklegir til að flýta fyrir því sem ýmsir teldu nauðsynlegan samruna íslenskra fjármálafyrirtækja. Þannig væri töluverður gangur kominn í samrunaviðræður Glitnis og sparisjóðsins Byrs, sem breytt hefur verið í hlutafélag. Eins væru aðaleigendur Landsbankans og Straums með sameiningu til alvarlegrar skoðunar. Þetta eru eðlileg tíðindi. Þau koma til viðbótar vangaveltum um framtíð nokkurra sparisjóða sem glíma við lausafjárskort og hafa sumir kosið að sameinast öðrum fjármálastofnunum eða hreinlega neyðst til þess. Víst er að frekari sameiningar eða yfirtökur eru fram undan á þeim bænum. Aðgerðir í hagkerfi nútímans ráðast nefnilega hvort tveggja af skynsemi og nauðsyn. Margir hafa lengi talið að íslenskar fjármálastofnanir séu of margar og ná megi fram hagræðingu með samruna og yfirtökum. Nú hefur rík nauðsyn bæst við í grunn röksemdafærslunnar og þá verður væntanlega ekki að sökum að spyrja. Í því tilliti er hins vegar rétt að hvetja hið opinbera, bæði stjórnvöld og eftirlitsstofnanir, til að gæta þess að hamla ekki nauðsynlegum samrunum og hætta þar með á að einstök fyrirtæki gefist upp. Athyglisvert er í því sambandi að hafa í huga að samruni risa­fyrirtækjanna Bank of America og Merrill Lynch hefði verið keyrður í gegn á 48 klukkustundum og án athugasemda frá eftirlitsstofnunum. Á það hefur verið bent, að hér geti tekið margar vikur að fá skorið úr mun smærri málum með tilheyrandi kostnaði og töfum. Undir þetta skal tekið. Vonandi afgreiðir Samkeppniseftirlitið sem fyrst samruna Kaupþings og SPRON, svo óvissu varðandi framtíð síðarnefnda félagsins megi eyða. Forstjóri Fjármála­eftirlitsins hefur enda hvatt sérstaklega til samruna fjármálafyrirtækja. Að sama skapi er rétt að vitna til orða Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem sagði í nýlegu viðtali við Markaðinn: „Ég tel víst að það sé unnt að hagræða í bankakerfinu, til dæmis með sameiningu eða samruna fyrirtækja. Ríkisstjórnin mun stuðla að því fyrir sitt leyti.“ Frekari vitna þarf varla við.



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×