Skoðun

Metverðbólga í 18 ár

Björgvin Guðmundsson skrifar um verðbólgu skrifar
Verðbólgan er nú orðin 11,8%. Það er óhuggulegt. Gengislækkun krónunnar veldur hér mestu en ljóst er, að sumir kaupmenn og verslunareigendur hafa farið óvarlega í verðhækkunum. Ég fór út í verslun og keypti steiktan kjúkling. Hann hafði hækkað um 30%! Það er of mikil hækkun enda þótt framleiðslukostnaður hafi hækkað m.a. vegna hækkunar á fóðri. Menn verða að fara varlega í hækkanir.

Seðlabankinn hækkaði fyrir skömmu stýrivexti í 15,5%. Þeir voru þá hækkaðir um 1/2 prósentustig og var þetta 21. stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Frá því að þessi síðasta vaxtahækkun Seðlabankans tók gildi hélt gengi krónunnar í fyrstu áfram að lækka en hefur síðan styrkst nokkuð. En það var einn helsti tilgangur vaxtahækkunarinnar að styrkja krónuna og lækka verðlag á þann hátt. Seðlabankinn hefur sl. 7 ár stanslaust hækkað stýrivexti í þeim tilgangi að lækka verðbólguna. En verðbólgan hefur á þessu tímabili aukist en ekki minnkað. Aðgerðir Seðlabankans hafa algerlega mistekist.

Þorvaldur Gylfason prófessor telur að Seðlabankinn hafi brugðist við alltof seint. Hann hafi byrjað of seint að hækka stýrivexti og í of litlum skrefum til að byrja með. Í dag er alveg ljóst að vaxtahækkun Seðlabankans hefur engin áhrif. Verðbólgan heldur áfram að aukast þrátt fyrir aðgerðir Seðlabankans. Peningamálastefna Seðlabankans hefur brugðist. Tveir kennarar við háskólann telja að skipta verði um áhöfn í Seðlabankanum. Það eru þeir Þorvaldur Gylfason prófessor og Gylfi Magnússon dósent sem setja þessa skoðun fram og undir hana tekur Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra.

Miklar umræður eiga sér nú stað um efnahagsmálin á Íslandi. Verðbólgan æðir áfram og er nú komin í tveggja stafa tölu. Því er jafnvel spáð að hún gæti farið í 15%. Viðskiptahallinn er mjög mikill og bankarnir eiga í erfiðleikum með að útvega sér lánsfé erlendis vegna hás skuldatryggingarálags. Allir íslensku viðskiptabankarnir hafa skuldsett sig óeðlilega mikið. Þeir hafa farið óvarlega í lántökum erlendis og eiga nú í erfiðleikum með endurfjármögnun. Ef þeir geta ekki endurfjármagnað sig á þokkalegum kjörum eru þeir í vondum málum.

Ríkisstjórnin hefur sagt að hún standi við bakið á bönkunum á sama hátt og ríkisstjórnir erlendis geri gagnvart sínum bönkum.Ég tel ekki koma til greina að ríkissjóður eða Seðlabanki leggi framlög (styrki) til bankanna. Þeir hafa grætt mikið undanfarin ár og hafa hirt gróðann sjálfir. Þeir verða sjálfir að koma sér út úr þeim vandræðum,sem þeir hafa komið sér í. Ef undirstöður bankanna fara að bila kæmi til greina að þjóðnýta bankana, eins og Þorvaldur Gylfason hefur lagt til, og að selja þá síðan á ný til aðila sem kunna að reka banka.

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×