Matur

Hreindýrafillet með porchini sveppum

Kjötið er brúnað á pönnu, kryddað með salti og pipar og bakað í ofni við 120° þar til það nær 59° í kjarna það gæti tekið frá 40-50 mín.

Fjöldi matargesta: 4
 
1 kg Hreindýrafillet
1 Tsk. bláberjasulta
olía , til steikingar
salt
pipar

Sósan:

Sveppirnir eru lagðir í vatn til mýkingar, síðan saxaðir smátt og brúnaðir í smjörinu, þá er soði og púrtvíni hellt út í og allt látið malla í 10 mín.

Að lokum er rjómanum bætt út í og látið malla aftur í 10 mín. og sultunni þá bætt út í. Saltað og piprað eftir smekk.

Hægt er að þykkja sósunna með sósujafnara ef þörf þykir.

Sósa:
25 g Porchini sveppir , þurrkaðir
0.5 l Villisoð , OSCAR
1 dl púrtvín , dökkt
400 ml. rjómi
2 Msk. smjör
salt
pipar








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.