Skoðun

Brot á stjórnarskrá

Verðtryggðar skuldir heimilanna eru nú rúmir 1.400 milljarðar króna og hækka um tugi milljarða um hver mánaðamót. Seðlabankinn spáir að verðbólga aukist enn og fari yfir 20% í upphafi næsta árs. Verðtryggðar skuldir heimilanna munu því áfram hækka og áfram verður gengið á eignir fólks og kaupmáttur skertur. Í ljósi þessa þarf engan að undra að yfirgnæfandi meirihæuti þjóðarinnar vilji að verðtrygging verði afnumin.

Verðtryggingin er ekki einungisóréttlát, hún er einnig andstæð eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Segjum sem svo að ég safni tveimur milljónum króna fyrir útborgun í 20 milljóna króna íbúð og taki 18 milljónir að láni. Eftir að ég kaupi íbúðina tekur við verðbólgutíð eins og sú sem nú stendur yfir og ársverðbólga reynist 15%. Verðtryggingin gerir það að verkum að höfuðstóll og afborganir lánsins hækka mikið og aðeins einu ári eftir að ég keypti íbúðina og lagði út tvær milljónir af eigin fé er lánið komið í 20,8 milljónir! Tveggja milljón króna eignaskerðing hefur því orðið í krafti verðtryggingaráhrifa og ég sit eftir með eintómar skuldir þrátt fyrir að hafa borgað af láninu í heilt ár. Ég hef því verið sviptur eign minni.

Fólki er nauðugur einn sá kostur að koma sér og sínum þaki yfir höfuðið, enda er húsaskjól slík grundvallarnauðsyn að hún er tilgreind í Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hér á landi hefur leigumarkaðurinn verið ónýtur og húsnæðisverð hækkaði um 84% frá árinu 2003 til 2007. Laun flestra héldu ekki í við þá verðhækkun. Þorri fólks hefur því neyðst til að taka sér há lán til að koma sér þaki yfir höfuðið og á húsnæðislánamarkaði eru verðtryggð lán það eina sem býðst.

Það má því ljóst vera að taka verðtryggðra lána hlýtur í flestum tilvikum að vera þvinguð en ekki frjáls og valkvæð, og þannig andstæð grundvallarreglum samningaréttar og undirstöðurökum eignarréttarverndar.

Verðtrygging er ekki náttúrulögmál. Hún er sá skattur sem lagður er á almenning hér á landi til að viðhalda dvergvöxnum gjaldmiðli og til að bæta upp fyrir mistæka peningastjórn. Örlög fjölda lántakenda ráðast í verðbólgutíð næstu mánaða og því verður að breyta eða afnema verðtryggingu lána. Réttlætiskennd almennings og stjórnarskráin bjóða ekki upp á annað.

Höfundur er ríkisstarfsmaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×