Skoðun

Gott hjá Þórunni, en …

Ögmundur Jónasson skrifar
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur fengið lof fyrir þá ákvörðun sína að fram skuli fara heildstætt umhverfismat fyrir alla þætti sem snúa að því að reisa álver á Bakka við Húsavík. Áður hafði ráðherrann fengið gagnrýni fyrir að láta ekki slíkt mat fara fram á samsvarandi framkvæmd í Helguvík á Reykjanesi.

Hvort tveggja, lofið og gagnrýnina, tek ég undir. Að sjálfsögðu er annað fráleitt en að fram fari mat á því samtímis hverjar afleiðingar það hefði fyrir umhverfið að reisa verksmiðju, virkja orkuna til að knýja hana og flytja rafmagnið frá virkjun til verksmiðju. Enda þótt almennt sé viðurkennt að þetta séu eðlileg vinnubrögð, þá hefur það ekki farið framhjá neinum að hörðustu virkjunarsinnum þyki slæmt að slík heildstæð skoðun fari fram - tala um ónauðsynlegar tafir.

Samráðherrar Þórunnar, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, lýsa því yfir að álver verði byggt á Bakka hvað sem tautar og raular. Bera í besta lagi í bætifláka fyrir umhverfisráðherra með því að segja að Þórunn sé að sinna nauðsynlegum formsatriðum. Gagnrýnin á umhverfisráðherra þykir mér ekki byggja á haldbærum rökum.

En hvers vegna efasemdarfyrirvarinn sem ýjað er að í fyrirsögn þessa greinarkorns?

Á umhverfisráðherranum sjálfum er nefnilega svo að skilja að heildstætt umhverfismat muni ekki breyta neinu, að í huga hennar sjálfrar sé fyrst og fremst um formasatriði að ræða, sbr. eftirfarandi ummæli í Sjónvarpsfréttum 1. ágúst um þessa ákvörðun: „Það þýðir auðvitað að það bætast við einhverjar vikur, mánuðir í ferlinu en fyrir svo stórt verkefni sem í raun á að líta dagsins ljós árið 2012 líklega, þá skipta nokkrar vikur eða mánuðir á þessari stundu ekki öllu máli."

Þarna tel ég hins vegar að stóriðjusinnar hafi nokkuð til síns máls þegar þeir segja að heildstætt mat valdi töfum og auki á óvissu; óvissu um að álver verði reist á Bakka. En það er jákvætt í augum okkar sem teljum frekara umhverfisrask í þágu fjölþjóðlegra álrisa hið mesta glapræði. Einnig í efnahagslegu tilliti.

Höfundur er alþingismaður.










Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×