Skoðun

Auka þarf jöfnuð og draga úr misskiptingu

Ójöfnuður hefur aukist mikið á Íslandi síðustu 14 árin. Ástæðurnar eru margar. Ein helsta ástæðan er sú, að skattleysismörkin hafa ekki fylgt breytingum á verðlagi og kaupgjaldi. Ef skattleysismörkin hefðu fylgt launavísitölu frá 1988 væru þau í dag 140 þúsund á mánuði en þau eru aðeins 90 þúsund á mánuði. Önnur ástæða er sú, að lífeyrir elli-og örokulífeyrisþega hefur dregist aftur úr í launaþróuninni. Kjör þessara hópa hafa versnað mikið miðað við kjör launþega á almennum vinnumarkaði. Og þriðja ástæðan en ekki sú veigaminnsta er sú, að hið rangláta kvótakerfi hefur fært gífurlega fjármuni til í þjóðfélaginu, frá mörgum til fárra. Kvótarnir eru nú á hendi örfárra sem raka saman miklum fjármunum í skjóli þess að hafa umráð yfir kvótanum.

Ranglátt skattkerfiSkattkerfið er mjög ranglátt. Skattar hafa verið lækkaðir mikið á fyrirtækjum og fjármagnseigendum en í raun hafa skattar hækkað á einstaklingum, þar eð skattleysismörk hafa ekki fylgt launavísitölu.

Miðað við staðtölur OECD jókst skattbyrðin úr 38% af landsframleiðslu 1990 í 48% af landsframleiðslu 2006. Á sama tíma hefur skattbyrðin á evrusvæðinu aukist úr 43% af landsframleiðslu í 45%. Skattbyrðin á Íslandi er því komin upp fyrir Evrópumeðaltal. Hækkun á skattbyrði um 10 prósentustig af landsframleiðslu er mjög mikil hækkun.



Ójöfnuður hefur stóraukistÓjöfnuður hefur aukist mjög mikið. Í ítarlegri grein sem Stefán Ólafsson prófessor birti í tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla haustið 2006 um aukningu ójafnaðar hér á landi, færir hann óyggjandi rök fyrir því, að ójöfnuður hafi aukist mun meira hér á landi en í grannlöndum okkar og raunar meira en í Bandaríkjunum, aðalríki auðvaldsskipulagsins. Ójöfnuður hjá fjölskyldum jókst um 40,7% á Íslandi á tímabilinu 1993-2005, þ.e. fyrir skatta. En eftir skatta hefur ójöfnuður á þessu tímabili aukist um 71,4%. Spurning er hvort réttara sé að miða þessar tölur við tekjur með fjármagnstekjum eða án þeirra. Án fjármagnstekna, eftir skatta, hefur ójöfnuður á umræddu tímabili aukist um 35,8% hér á landi. En með fjármagnstekjum, eftir skatta, hefur ójöfnuður aukist um yfir 70%. Það er því sama hvort miðað er við tekjur með eða án fjármagnstekna: Ójöfnuður hefur aukist mikið. 35,8% aukning ójafnaðar er mjög mikið.

Eykur ríkisstjórnin jöfnuð?Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks lýsir því yfir í stjórnarsáttmála sínum, að stjórnin leggi áherslu á að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Ríkisstjórnin segir, að hún muni stefna að því að lækka skatta á einstaklingum á kjörtímabilinu m.a. með því að hækka persónuafslátt. Það verður fylgst mjög vel með því hvernig það stefnumál að auka jöfnuð verður efnt. Hvernig er auðveldast að auka jöfnuð í þjóðfélaginu? Það verður best gert með aðgerðum á sviði almannatrygginga og skattamála. Það þarf að stórhækka bætur elli-og örorkulífeyrisþega og afnema eða draga mikið úr öllum skerðingum lífeyris almannatrygginga. Skerðingar vegna tekna úr lífeyrissjóðum á að fella niður. Enn hafa engar hækkanir á lífeyri almannatrygginga átt sér stað frá því að nýja ríkisstjórnin tók við völdum. Þess er að vænta, að aðgerðir á þessu sviði sjái dagsins ljós strax í haust. Þá þarf að stóhækka persónuafsláttinn svo skattleysismörkin verði a.m.k 140 þúsund krónur á mánuði. Framangreindar ráðstafanir í trygginga-og skattamálum mundu hafa mikil jöfnunaráhrif.

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×