Skoðun

Er Al­þingi ó­þarfi?

Eygló Harðardóttir skrifar

Að undanförnu hefur stjórnarandstaðan bókstaflega verið að springa úr spenningi yfir kosningunum í vor og hugsanlegri félagshyggjustjórn stjórnandstöðuflokkanna að þeim loknum. Þannig bar æsingurinn yfir „væntanlegum“ stjórnarskiptum formenn Vinstrihreyfingarinnar og Samfylkingarinnar ofurliði í Kryddsíldinni á gamlársdag.

Í upphafi stefndi í frekar tíðindalitla Kryddsíld, en skyndilega upphófst orðaskak milli Ingibjargar Sólrúnar og Steingríms J. um hver ætti að verða forsætisráðherra í væntanlegri félagshyggjustjórn.

Eftir þáttinn sat ég eilítið hugsi. Var það virkilega svo að fyrsta mál stjórnarandstöðunnar var að ákveða hver yrði forsætisráðherra? Ekki hver stefnan yrði í Evrópu-, umhverfis-, efnahags- eða innflytjendamálum? Nei, ráðherrastólarnir voru mikilvægastir. Þessi umræða sýnir í hnotskurn þann vanda sem íslensk stjórnskipun er komin í.

Þrískipting valdsins?

Einn af grundvöllum vestræns lýðræðis er þrískipting valdsins í framkvæmda-, dóms- og löggjafarvald. Á Íslandi hefur dómsvaldið áþreifanlega sýnt sjálfstæði sitt með dómum sem hafa ekki fallið sérstaklega í kramið hjá hinum kjörnu fulltrúum. En er hægt að greina á milli löggjafar- og framkvæmdavaldsins hér á landi?

Síðastliðinn vetur tók ég um tíma sæti á Alþingi sem varaþingmaður og starfaði mikið í nefndum þingsins. Það sem kom mér mest á óvart var hversu lítið löggjafarstarf fór í raun fram í nefndunum. Lagafrumvörp voru lögð fram af ráðuneytunum og fylgdu starfsmenn viðkomandi ráðuneyta þeim úr hlaði og virtust oft hafa lítinn áhuga á að heyra skoðanir hinna kjörnu fulltrúa.

Þeir sem enginn kaus

Jarðtenging starfsmanna ráðuneytanna við hinn almenna borgara virtist einnig stundum vera lítil. Má nefna sem dæmi að í einu tilfelli tók ég eftir ákvæði í lagafrumvarpi þess efnis að öll fyrirtæki í landinu ættu að birta ákveðinn texta á vefsíðu sinni. Öll fyrirtæki spurði ég og benti síðan á að Óli pípari og Nonni bóndi sæu sér engan hag í að halda úti vefsíðum í sínum rekstri, en ef frumvarpið færi óbreytt í gegn væri þeim skylt að leggja út í þann kostnað. Þannig virðist vald Alþingis að miklu leyti hafa færst yfir til ráðherranna og í framhaldi af því til starfsmanna ráðuneytanna, sem enginn kaus.

Í flestum lýðræðisríkjum er lögð mikil áhersla á þrískiptingu valdsins. Þannig eru ráðherrar í Bandaríkjunum ekki þingmenn og í Svíþjóð er það svo að ef þingmenn eru útnefndir ráðherrar þurfa þeir að víkja sæti á þingi á meðan þeir gegna ráðherradómi. Enda er það svo að í þessum ríkjum er staða þingforseta raunveruleg valdastaða, ólíkt því sem gerist hér á landi.

Aðskiljum löggjafar- og framkvæmdavaldið

Meðal íslenskra stjórnmálamanna virðist lítill áhugi á að ræða nauðsyn raunverulegs aðskilnaðar löggjafar- og framkvæmdavalds. Stjórnarandstaðan er föst í umræðunni um ráðherrastólana og því miður má það sama segja um ríkisstjórnarflokkana. Einna helst hefur Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, reynt að vekja upp umræðu um þessi mál við litlar undirtektir.

Það er nauðsynlegt lýðræðinu á Íslandi að tekin verði skref sem tryggi skýra aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdavalds. Setning laga á að vera í höndum kjörinna fulltrúa, en ekki nafnlausra embættismanna á kontórum uppi í ráðuneyti. Ráðherrar eiga að framkvæma vilja Alþingis. Ekki öfugt.

Höfundur gefur kost á sér í 2. sætið á lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi

Það er nauðsynlegt lýðræðinu á Íslandi að tekin verði skref sem tryggi skýra aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdavalds.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×