Skoðun

Valdníðsla Framsóknar er okkur dýr

Fjölmiðlar skýra frá því, að réttarsátt hafi náðst í máli Björns Friðfinnssonar ráðuneytisstjóra gegn ríkinu en ráðherrar Framsóknar höfðu af honum ráðuneytissjórastöðuna, sem hann var forsetaskipaður í.

Verður iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið að greiða Birni ráðuneytissjóralaun til sjötugs þó hann sé ekki við störf í ráðuneytinu og að auki verður ráðuneytið að greiða 2 milljónir króna í miskabætur. Munu þetta einna hæstu miskabætur, sem dæmdar hafa verið. Þrír ráðherrar skrifuðu undir réttarsáttina og viðurkenndu þar með, að iðnaðar-og viðskiptaráðherra hefði brotið lög með því að hafa ráðuneytisstjórastöðuna af Birni.

Gróf valdníðsla„Brottvikning" Björns úr embætti ráðuneytisstjóra er eitt nýjasta dæmið um grófa valdníðslu ráðherra Framsóknarflokksins. Björn Friðfinnsson var skipaður ráðuneytisstjóri 1989 ævilangt. Hann fékk leyfi frá störfum til þess að fara til starfa hjá ESA í Brussel en átti samkvæmt samkomulagi að taka við starfi sínu í ráðuneytinu aftur en það samkomulag var svikið. Var það dregið nokkrum sinnum, að hann fengi að taka við starfi sínu á ný. Hafði Björn sýnt mikinn samkomulagsvilja en samt var samkomulag við hann svikið. Björn er mjög hæfur embættismaður og hann hafði ekkert brotið af sér í starfi.

Ekki var unnt að finna neitt að störfum hans.Hið eina sem ráðherrar Framsóknarflokksins gátu fundið að Birni var, að hann væri jafnaðarmaður! Þó eru mörg dæmi um það, að menn hafa gegnt háum embættum í Stjórnarráðinu þó þeir hafi ekki haft sömu stjórnmálaskoðanir og ráðherrarnir.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra misbeitir valdi sínu við ákvarðanir um embætti og lætur stjórnmálaskoðanir ráða skipun og brottvikningu. Skammt er síðan sami ráðherra flæmdi Georg Ólafsson, frábæran forstjóra Samkeppnisstofnunar, úr starfi til þess að koma rétt ættuðum Framsóknarmanni að. Það virðist ekki skipta ráðherra ríkisstjórnarinnar neinu máli, þó þeir baki ríkissjóði mikið fjárhagstjón með embættisfærslum sínum og embættisafglöpum.

Þeir afgreiða starfslokasamninga á færibandi og senda ríkissjóði reikninginn. Miklar skaðabætur skipta þá ekki máli. Ríkið borgar.

Önnur misbeiting valdsMörg önnur dæmi mætti nefna um valdníðslu og misbeitingu valds ráðherra Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. Í utanríkisráðuneytinu hefur flokksgæðingum þessara flokka verið raðað í sendiherrastöður og önnur embætti. Báðir stjórnarflokkarnir hafa verið drjúgir í því efni en Framsókn hefur haft vinninginn og alltaf „passað" vel upp á sína menn og sennilega á Framsókn metið í því að troða sínum mönnum í embætti.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×