Skoðun

Að villa á sér heimildir

Í viðhorfi í þessu blaði sl. þriðjudag gefur Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi í skyn að ég nýti mér í pólitískum tilgangi að dóttir mín hafi verið á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum borgarinnar.

Ég hafi haldið því leyndu fyrir fréttamanni að ég væri í pólitík til að komast í blöðin á þennan hátt. Þetta er auðvitað fráleitt og lýsir e.t.v. meira hugsunarhætti þess sem lætur sér detta þvílíkt í hug. Ég var hins vegar beðinn um að ljá úttekt blaðamanns á biðlistum eftir frístundaplássi persónulegan vinkil og mér fannst mér ekki stætt á að neita því þar sem ég hef, ásamt félögum mínum í Íþrótta- og tómstundaráði, verið að beita mér fyrir lausn á þessu máli.

Staðreyndin er sú að sem formaður Íþrótta- og tómstundaráðs hefur Björn Ingi dregið lappirnar í þessu máli. Hann verður því að geta tekið gagnrýni frá foreldrum sem hafa þurft að vera á hlaupum á milli vinnu og barna af því að ekki eru til næg rými á frístundaheimilunum. Samfylkingin í Íþrótta- og tómstundaráði hefur mælt með að foreldrum verði boðið upp á hlutavistun fyrir börn sín og ég bind miklar vonir við að það bæti úr þessum vanda. Það er hins vegar nokkuð sem hefði þurft að skoða miklu fyrr.

Björn Ingi talaði í vor um sig sem sérstakan athafnastjórnmálamann sem léti verkin tala. Það hefur hann ekki gert í þessu máli og eðlilegt að á það sé bent þegar menn auglýsa sig sem sérstaklega framtakssama stjórnmálamenn. Það er óþarfi að taka það persónulega, nær að líta á það sem faglega gagnrýni. Ég tek fram að ég hef ekkert út á persónu Björns Inga að setja en dálitla samúð með þeirri stöðu sem hann er í. Þótt hann hafi komið sér í þá stöðu sjálfur hlýtur það að vera strembið að vera eini borgarfulltrúi flokks sem ræður yfir nánast helmingi nefnda borgarinnar.

Ég vona hins vegar að biðlistum frístundaheimilanna verði útrýmt hið fyrsta því fyrir þá tæplega 200 foreldra sem í 14 vikur hafa ýmist þurft að taka vinnuna með sér heim, börnin í vinnuna eða jafnvel skilja börnin eftir ein heima er þetta mál afar persónulegt.

Dofri Hermannsson er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og foreldri.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×