Skoðun

Aumur blettur í frístundamálum?

Þau eru merkileg viðbrögð sumra framsóknarmanna við litlu viðtali sem Fréttablaðið birti í gær við Dofra Hermannsson, varaborgarfulltrúa og föður barns á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Grafarvoginum.

Netmiðlaskríbentar flokksins hófu strax stórsókn eftir því sem mér er tjáð og foringinn í borgarstjórn svarar fyrir sig á tveimur stöðum í Fréttablaðinu í dag. Það er út af fyrir sig skiljanlegt að sumir framsóknarmenn séu aumir fyrir ábendingum af því tagi að hundruð barna hafi verið á biðlista í haust. Það vill svo til að ástandið hefur verið verst í Grafarvoginum, en þar hefur Dofri og fleiri foreldrar verið ötulir í því að reyna að finna leiðir til að leysa úr og meðal annars tekið upp hugmynd sem áður hafði verið rætt um sem bráðabirgðalausn fyrir þá sem ekki þurfa fulla vistun. Dofri á skilið lof fyrir innlegg sitt í þeirri baráttu sem fulltrúar Samfylkingar áréttuðu í íþrótta- og tómstundaráði og skilaði sér m.a. í því að starfsmenn ÍTR fóru þessa leið. Fyrir vikið hefur m.a. tekist að vinna á biðlistanum.

Ég get alveg tekið undir það að það er ánægjulegt að nú í nóvember fór tala þeirra barna sem eru á biðlista undir þá tölu sem var um svipað leyti í fyrra. Fram að því var fjöldi barna á biðlista mun meiri. Vandi foreldra og barna sem ekki fá umbeðin pláss getur verið talsverður. Fram hefur komið að þriðjungur barna sem ekki hefur fengið vistun er einn heima sem ekki er gott. Það vita allir í hverju vandinn liggur. Það vantar starfsfólk. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, beitti sér fyrir launahækkun þessa starfsfólks. Sú aðgerð hefur án efa haft talsvert að segja.

Það er hins vegar eftirtektarvert að sjálfstæðismenn hafast lítið að í ljósi þess að fulltrúar þeirra í borgarstjórn fyrir ári fóru nánast hamförum yfir stöðunni sem þá var í biðlistamálum og gáfu í skyn að það væri lítið mál að eyða biðlistum, bara ef þeir fengju að stjórna. Reynslan sýnir nú annað ef litið er á biðlista eftir plássum á dagheimili og frístundaheimili. Það er svo athyglisvert út af fyrir sig að nýverið samþykktu framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hækkun á ýmsum gjöldum upp á 8,8%, meðal annars fyrir frístundaheimili. Þetta er meiri hækkun en mér sýnist hægt að réttlæta út frá almennum verðlagsbreytingum. Það var reyndar athyglisvert að á síðasta fundi vissu fulltrúar meirihlutans í ÍTR ekki hvernig þessi tala væri til fundin. Þetta væru einungis boð úr Ráðhúsinu. Og þau boð rýra kjör þeirra foreldra sem þurfa að borga.

 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×