Skoðun

Árangur lyfjaeftirlits á Íslandi

Mig langar að koma á framfæri leiðréttingu og athugasemd vegna fréttar Fréttablaðsins 18. nóvember síðastliðinn um steranotkun í fitness. Þar er ranglega haft eftir mér um að 60% iðkenda í fitness falli á lyfjaprófum í keppni, það sem var sagt var að um 60% fall væri í prófum í fitness keppni og þar sem aðeins lítill hluti þátttakenda í hverri keppni er prófaður er ekki hægt að heimfæra þá tölu upp á heildina. Eftir þessa fullyrðingu hefur mér hinsvegar orðið ljóst að þarna hef ég farið ranglega með tölur sem er verulega óheppilegt og setur rangan stimpil á stóran hóp íþróttafólks sem stundar fitness á Íslandi. En Alþjóðasamband líkamsræktarmanna (IFBB) á Íslandi, sem heldur flest fitness mótin á Íslandi hefur reglulega fengið lyfjaeftirlit á mótum sínum síðan árið 2000 og þar hefur fall ekki verið nálægt því að vera 60%.

Það starf sem IFBB hefur unnið að eigin frumkvæði hérna á Íslandi síðustu ár tengt lyfjaeftirliti á keppendum á mótum sínum er mjög gott og hefur borið sýnilegan árangur í baráttu við notkun ólöglegra árangursbætandi efna innan þeirra raða og væri vonandi að aðrar líkamsræktargreinar og keppnishaldarar í landinu tækju þá til fyrirmyndar og hefðu virkt eftirlit í sínum greinum. IFBB er aðili að samkomulagi Alþjóða lyfjaeftirlitsnefndarinnar (WADA) og sem slíkt framkvæmir það reglulegt lyfjaeftirlit á sínu íþróttafólki. Þótt IFBB á Íslandi sé ekki aðili að ÍSÍ þá hefur það sjálft séð um kostun lyfjaeftirlitsins á sínum mótum ásamt framlagi frá ÍSÍ að hluta.

Ég vil því biðja forsvarsmenn IFBB á Íslandi afsökunar á þessari rangfærslu hjá mér og vona að samstarf okkar við þá verði gott hér eftir sem hingað til.

Á síðustu árum hefur lyfja-eftirlit í íþróttum á Íslandi á vegum ÍSÍ aukist verulega og reynt hefur verið að gera starfið sýnilegra. Þessi þróun heldur áfram og er ég í engum vafa um að þetta starf eigi eftir að skila sér vel á næstu árum. Íþróttafólk fagnar þessu því með þessu er stuðlað að því að standa vörð um jafnréttisgrundvöllinn í íþróttum og einnig tækifæri fyrir íþróttamenn sem lenda í umtali að hreinsa sig af gróusögum. Notkun ólöglegra árangursbætandi efna er hinsvegar ekki bundin við skipulagða íþróttaiðkun og það þarf einnig að sporna við almennri notkun með aukinni fræðslu og forvarnarstarfi í samfélaginu.

Höfundur er formaður Lyfjaráðs ÍSÍ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×