Skoðun

Samkeppnishæfara skattaumhverfi

Samkeppnishæfni

Skattalækkanir á undanförnum árum hafa skilað sér í auknum skatttekjum fyrir ríkissjóð. Svartagallsraus þeirra vinstri manna sem töldu að fótunum yrði kippt undan velferðarkerfinu með skattalækkunum reyndist því ekki á rökum reist. Þvert á móti hafa skattalækkanir styrkt getu okkar til að leggja fé í þá samneyslu sem sátt er um að halda úti. Reynslan kennir okkur að við eigum að halda áfram að feta braut skattalækkana.

Nokkuð hefur verið um fjárfestingar erlendra aðila hér á landi að undanförnu þótt hún hafi því miður einskorðast full mikið við stóriðju. Það telst nokkur viðurkenning á íslensku hagkerfi og skattkerfi þegar erlendir aðilar sýna fjárfestingakostum hér á landi þennan áhuga. Einkum í ljósi þeirrar samkeppnin sem við erum í við þau lönd sem við berum okkur gjarnan saman við. Í alþjóðlegum samanburði er Ísland nokkuð framarlega þegar kemur að einföldu skattkerfi og lágri skattprósentu á fyrirtæki. Ljóst er að lækkun á tekjuskattsprósentu á fyrirtæki gæti laðað fleiri erlenda fjárfesta og meira erlent fjármagn hingað til lands.

Lágir skattar eru ekki nóg

Taka má dæmi af tveimur evrópulöndum, Hollandi og Írlandi, sem hafa verið vinsæll kostur alþjóðlegra fyrirtækja og fjárfesta sem eru með starfsemi víða um heim. Er það þrátt fyrir að himinn og haf skilji löndin að hvað varðar skattprósentu tekjuskatts fyrirtækja, sem er 31,5% en 12,5% á Írlandi. Skattaumhverfið á Írlandi er nokkuð einfalt, ef það er yfirleitt hægt að tala um að skattkerfi séu einföld.

Yfirlýst stefna stjórnvalda í Hollandi er að skapa samkeppnishæfasta skattaumhverfi sem hugsast getur fyrir erlenda fjárfesta. Til þess að ná markmiðinu er skattkerfið stöðugt í endurskoðun og er leitast við að gera samningar við önnur lönd til að koma í veg fyrir tvísköttun. Holland hefur það fram yfir mörg önnur lönd að hafa gert mun fleiri tvísköttunarsamninga við erlend ríki. Þetta hefur, ásamt öðru, gert Holland afar eftirsóknarvert. Í báðum þessum löndum hefur skattkerfið verið útfært heildstætt þannig að það hafi áhrif á aðra þætti, svo sem skatta á einstaklinga.

Breytum um hugsunarhátt í skattheimtu

Holland er því vinsæll fjárfestingakostur vegna góðs skattkerfis, þrátt fyrir háa skattprósentu. Við ættum að taka Holland okkur til fyrirmyndar hvað varðar endurskoðun á skattkerfinu þótt skattprósentan sjálf sé ekki til fyrirmyndar. Íslendingar ættu að setja sér það markmið að hafa samkeppnishæfasta skattaumhverfi í heimi. Með því að búa til aðlaðandi skattaumhverfi fyrir erlenda fjárfesta mætti auka hagsæld hér enn frekar. Það myndi veita svigrúm til þess að lækka tekjuskatt á einstaklinga og virðisaukaskatt enn meira.

Við verðum að búa til gott umhverfi til handa atvinnulífinu hér á landi þannig að auka megi enn frekar erlendar fjárfestingar. Þannig getur svigrúm skapast til þess að lækka enn frekar skatta og álögur á einstaklinga. Við þurfum því að byrja á því að skjóta styrkari stoðum undir atvinnulífið svo að þetta svigrúm geti skapist.

Höfundur gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×