Skoðun

Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu

HeilbrigðismálEinstaklingsframtakið á að fá notið sín á öllum sviðum ískensks atvinnulífs. Samstarf einkaaðila og ríkisins í heilbrigðismálum er ekki bara áhugaverð þróun heldur líka nauðsynleg þróun. Einkarekstur þekkist reyndar víða í heilbrigðiskerfinu, læknastofur út um allan bæ eru reknar af einkaaðilum. Einkaaðilar hafa komið að rekstri öldrunarheimila og endurhæfingarspítala. Flest dæmi um einkarekstur hafa komið vel út og margar stofnanir sem reknar eru af einkaaðilum eru á heimsmælikvarða og má í því samhengi nefna Reykjalund sem er rekin er af SÍBS. Mikilvægt er að þegar leitað er eftir aðkomu einkaaðila sé það gert með hagkvæmni og aukin gæði að leiðarljósi.

Mikilvægt er að allir landsmenn eigi jafnan rétt á góðri heilbrigðisþjónustu og njóta valfrelsis eins og kostur er þegar kemur að því að velja hver veitir þessa þjónustu. Á sama tíma vil ég að almenn heilbrigðisþjónusta sé greidd úr sameiginlegum sjóðum okkar allra. Þetta er stefna Sjálfstæðisflokksins. Því er tal vinstri manna um að stefna Sjálfstæðisflokksins sé að einkavæða heilbrigðiskerfið rökleysa. Síðast lét formaður Vinstri grænna þau orð falla í blaðaviðtali nú nýverið. Mikilvægt er að skilja á milli orðanna einkavæðing og einkarekstur.

Sjálfstæðisflokkurinn vill að ríkið stuðli að samstarfi við einkaaðila um að veita heilbrigðisþjónustu með hagkvæmni og aukin gæði að leiðarljósi.

Útgjöld til heilbrigðismálaÚtgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið hratt á Íslandi á síðustu árum. Ástæðurnar eru eflaust margar, meðal annars hækkun lífaldurs, aukin tækni og þekking sem tryggir betri lífsgæði o.s.frv. OECD hefur spáð því að verði ekkert að gert muni útgjöld okkar til heilbrigðismála árið 2050 nema rúmum 15% af vergri landsframleiðslu. Það myndi þýða að íslenskt heilbrigðiskerfi yrði það dýrasta í heimi. Markmið okkar á að vera að bjóða upp á besta heilbrigðiskerfi í heimi en ekki það dýrasta. Okkur ber skylda til þessa að tryggja að farið sé vel með almannafé og því þarf stöðugt að leita hagræðingar þegar kemur að notkun opinbers fjármagns. Margir hafa í þessu sambandi bent á kosti einkareksturs þar sem einkaaðilar eru oft á tíðum færari enn ríkið til að veita gæða þjónustu á góðu verði. Hið opinbera ber enn að greiða fyrir þjónustuna og stuðla að öflugu eftirliti og tryggja með því gæði þjónustunnar og að vel sé farið með almannafé.

Höfundur er varaþingmaður og gefur kost á sér í 4-5 sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 11. nóvember næstkomandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×