Skoðun

Ljúga stjórnvöld?

Alþingismenn og ráðherrar núverandi stjórnarflokka tuða sífellt á því hvað lágmarkslaun verkafólks hafi hækkað umfram önnur laun í landinu. Viljandi mata þeir þjóðina á þeim ósannindum að lágu launin hafi hækkað umtalsvert meira en þau hærri.

Og viljandi ljúga þeir að þjóðinni að skattar hafi lækkað hlutfallslega mest á lágu laununum. Því miður er þessu öfugt varið. Skattabyrði á láglaunafólki hefur þyngst og lágu launin setið eftir. Þessari staðreynd reyna þeir þó að leyna með öllum tiltækum ráðum. Þeir forðast líka eins og heitan eldinn að minnast á það að laun þeirra sjálfra hafa hækkað í tugum prósenta umfram almenna launataxta.

UmönnunarstofnanirÞað er ömurleg staðreynd að á sama tíma og ekki er hægt að manna umönnunarstofnanir og sjúkrahús vegna þess hvað kaupið þar er lágt, þá eru laun alþingismanna hækkuð um tugi prósenta umfram almenn laun í landinu. Það er engu líkara en ráðamenn þjóðarinnar haldi að það sé einhver lausn á vandanum. Og það er táknrænt að ráðherrar og þingmenn núverandi stjórnarflokka skuli stöðugt vara við hækkun lægstu launataxta verkafólks, en steinhalda kjafti þó þeirra eigin laun hækki langt umfram það sem almenningur fær. Vaxandi launamunurFrá janúar 1998 til júlí 2006 hafa lágmarkslaun verkafólks hækkað um 94%, úr kr. 63.399 í kr. 123.000. Á sama tíma hefur fast þingfararkaup alþingismanna hækkað um 120%, úr kr. 220.168 í kr. 485.570. Hefðu lægstu launin hækkað jafnt þingfararkaupi alþingismanna væru þau nú tæplega kr. 140.000 á mánuði. Til að jafna þann mun þurfa þau að hækka strax um 13,4% eða rúmlega kr. 16.500 á mánuði. Til samanburðar má geta þess að þingfararkaup alþingismanna, sem nú er kr. 485.570 á mánuði væri ekki nema kr. 427.126 ef það hefði fengið sömu hækkanir og lágmarkslaun verkafólks. Og meira til

Það skal sérstaklega tekið fram að hér er eingöngu gerður samanburður á hækkunum á föstu þingfararkaupi alþingismanna og lágmarkslaunum verkafólks. Væru hækkanir og viðbætur á öðrum tekjum, styrkjum og hlunnindum þingmanna metin inn í samanburðinn yrði að hækka lágmarkslaun verkafólks upp í a.m.k.150 þúsund krónur á mánuði til að halda í við laun þingmannanna.

Við skulum heldur ekki gleyma hvaða áhrif lækkanir á skattprósentu tekjuskatts gera. Þær koma háum launum ráðherra og alþingismanna til góða en hafa þess minni áhrif á lægstu launin. Til þess að minnka óeðlilega mikla skattbyrði á lágu laun í landinu þarf að hækka skattleysismörkin verulega. Þau eru núna kr. 79.055 og munu samkvæmt loforði stjórnvalda hækka upp í kr. 90.000 um næstu áramót. Sú hækkun er þó hvergi nærri nóg til að halda í við þær skattalækkanir sem hátekjufólk hefur fengið á undanförnum árum. Til þess þurfa skattleysismörkin að hækka a.m.k. upp í kr. 108.000 á mánuði miðað við núverandi verðlag.

Hefðu lægstu launin hækkað jafnt þingfararkaupi alþingismanna væru þau nú tæplega kr. 140.000 á mánuði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×