Skoðun

Veiðiferðin er búin

Róbert Marshall skrifar
Er Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, rétti maðurinn í það starf sem hann gegnir?

Það var ekki búið að ganga frá vinnslustað afurðanna þegar haldið var til veiða, það var ekki búið að kanna hvort einhver markaður væri fyrir hvalkjöt, það var ekki búið að vinna forvinnuna fyrir þann ímyndarlega skaða sem Íslendingar eru nú að ganga í gegnum á heimsvísu. Það virðist sem ekkert kynningarstarf hafi verið unnið áður en þessi ákvörðun hafi verið tekin. Og nú sér maður sjávarútvegsráðherra lýsa yfir hryggð sinni yfir vanþekkingu breta og ástrala í málinu og hvað þessar þjóðir komi nú illa út. Eins og einhver sé að hlusta. Það er bara ein þjóð sem kemur illa út í þessu máli.

Ríkisstjórnin hefur að vísu sent Jónínu Bjartmarz út til fundar við umhverfisráðherra norðurlandanna til þess að sannfæra þá um málstað íslendinga. Það er gott til þess að vita að einhver ráðherranna með eldheita sannfæringu í málinu sé nú að rétta hlut íslendinga í þessu persónulega klúðri Einars K. Guðfinnssonar sem er á landsögulegan mælikvarða. Þetta er sennilega eitt mesta klúður íslandssögunnar.

Því miður virðist það vera svo að ríkisstjórnin hafi talið að ef haldið yrði til veiða þá myndi þjóðin þjappa sér á bakvið hana og styðja hana í stríði hins litla við öll stórveldi heimsins. Og hætta að tala um hleranir.

Það eru sennilega flestir íslendingar sammála um rétt okkar til þess að stunda hvalveiðar. Það þýðir ekki að allir íslendingar séu þeirrar skoðunnar að við eigum að veiða hval. Heimspressan hefur gripið þetta mál á lofti og ríkisstjórnir hvaðanæva að úr heiminum fjalla um málið á mjög neikvæðan hátt. Enda er það illa unnið. Við erum að veiða hval, vegna þess að við megum veiða hval. Það eru engin efnisleg rök sem mæla með því.

Hin mjög svo undarlega þráhyggja Halldórs Ásgrímssonar að gera Íslendinga að fulltrúum í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hefur nú verið í framkvæmd í utanríkisráðuneytinu síðustu ár. Nú virðist ríkisstjórnin hafa hætt við að fara þá leið án þess þó að gefa það sérstaklega út.

Ríkisstjórnin stórskaðaði möguleika sína á því að ná þessu markmiði með því að taka upp hvalveiðar. Nú á þjóðin heimtingu á því að ríkisstjórnin leggi á borðið nákvæmar tölur yfir þá fjármuni sem settir hafa verið í þá umsókn Íslendinga. Hvað er búið að henda miklu af peningum landsmanna út um gluggann með þessari ótrúlegu þægni sjávarútvegsráðherra við Kristján Loftsson?

Ólíklegt verður að teljast að þessi skynsemismaður verði kallaður til þess aftur að stýra ráðuneyti á Íslandi. Einar K. Guðfinnsson verður nú að draga inn háfinn og hrista af sér lúsina; veiðiferðin er búinn.

Höfundur er í framboði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×