Skoðun

Fjarðarárvirkjun fyrirmynd

Það er fyllilega tímabært að staldra við og endurskoða með hvaða hætti er rétt að ráðast í virkjanaframkvæmdir líkt og Samfylkingin hefur lagt til. Hingað til hafa nýtingarsjónamiðin verið í forgrunni en náttúruverndin afgangsstærð. Þessu þarf að breyta. Það þarf að setja náttúruverndina í fyrsta sætið en síðan að skoða nýtingarmöguleikana. Gott dæmi um forgang náttúrunnar er ný virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði.

Það kom í minn hlut sem þá bæjarstjóri Seyðisfirðinga að stýra samningagerðinni við Íslenska Orkuvirkjun. Þar voru sett fram skýr náttúruverndarsjónarmið áður en hafist var handa við að reikna út arðsemina. Framkvæmdin skyldi taka mið af verndun náttúrunnar og arðsemisútreikningar byggja á þeim forsendum.

Í gömlu vatnalögunum var gert ráð fyrir að við virkjanaframkvæmdir væru nýtingarmöguleikarnir hámarkaðir. Við virkjun Fjarðarár var þessu öfugt farið. Víðtæk sátt náðist innan bæjarins um að ásýnd árinnar og fossana mætti ekki eyðileggja. Þannig fékk áin og fossarnir forgang að vatnsrennslinu en það sem umfram var mátti nýta til raforkuframleiðslu. Náttúran kom fyrst en síðan nýting.

Annað var gert ljóst áður en hafist var handa um arðsemisútreikninga. Allar pípur skyldu lagðar í jörð þannig að þær skemmdu ekki hið ægifagra umhverfi Seyðisfjarðar. Að þessum forsendum gefnum gat fyrirtækið farið að reikna út hvort framkvæmdin væri arðbær.

Fyrirliggjandi rammaáætlunum um virkjanir á Íslandi þarf að henda út í hafsauga og vinna þær alveg upp á nýtt. Byrja þarf á að skilgreina hvort og þá með hvaða hætti megi ganga á náttúru Íslands í hverju og einstöku tilfelli. Þegar sett hafa verið skýr mörk á forsendum náttúrverndar er hægt að fara að skoða hvort og hvar sé arðsamt að virkja. Nýting og arðsemi taki þannig mið af fyrirframgefnum náttúruverndarsjónarmiðum en ekki að reynt verði að þvinga náttúruverndina að nýtingarsjónarmiðum. Það á jafnt við um vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir.

Sú mikla umræða sem verið hefur undanfarið um virkjunarmál og umgengni við náttúru Íslands kallar á ný vinnubrögð og nýja nálgun varðandi slíkar framkvæmdir. Ný virkjun í Fjarðará getur orðið þar til fyrirmyndar. Látum náttúruna hafa forgang en nýtinguna mæta afgangi.

Höfundur sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×