Skoðun

Árangurslaus peningastefna

Peningamálastefnan

Margt bendir til að samfelldri hrinu stýrivaxtahækkana frá 10. maí 2004 sé lokið. Á þeim tíma hefur Seðlabankinn hækkað vexti 16 sinnum úr 5,3% í 14% í baráttu við að ná verðbólgumarkmiði sínu. Þrátt fyrir harkalegar aðgerðir í peningamálum erum við víðsfjarri markmiði um 2,5% verðbólgu sem flestir telja að sé ein af forsendum hagsældar. Í þessu ljósi er eðlilegt að spyrja hvort framkvæmd peningastefnunnar síðustu ár hafi skilað tilætluðum árangri?

Enginn vafi er á því að peningastefnan virkar og hefur áhrif á efnahagslífið en það er hins vegar álitamál hvort hún gerir gagn í ljósi hárrar verðbólgu. Fyrr en síðar munu ofurvextir á Íslandi knýja niður verðbólgu. Ólíklegt er að það gerist áfallalaust. Erlendir fjármagnseigendur hafa, ólíkt mörgum öðrum, haft mikið gagn af íslensku peningastefnunni. Þeir hafa fært mikið fé inn í hagkerfið, ekki til að fjárfesta í íslensku atvinnulífi heldur til að hirða vaxtamuninn.

Og hvað gerist þegar Seðlabankinn slakar á peningastefnunni og byrjar að lækka vexti? Fyrstir til að flýja land verða hinir erlendu fjármagnseigendur. Gengislækkun krónunnar er þá óhjákvæmileg og verðbólguskot fylgir yfirleitt í kjölfarið. Þannig getur harkaleg peningastefna, sem þrýstir m.a. upp gengi krónunnar, leitt til verðbólgukúfs þegar gengið fellur aftur andstætt markmiðum Seðlabankans.

Einn stærsti gallinn við núverandi framkvæmd peningastefnunnar er tímasetning vaxtabreytinga. Yfirleitt er talið þær taki 12-18 mánuði að ná fram fullum áhrifum. Flest bendir til að verulega verði tekið að hægja á efnahagslífinu eftir 1 ár. Þá er óheppilegt að fá fram full stýrivaxtaáhrif. Fullur þungi í peningastefnunni er einfaldlega of seint á ferðinni.

Seðlabankanum er vandi á höndum. Engin augljós lausn er á vandanum þó svo að vaxtalækkun sé líklega skásti kosturinn við núverandi aðstæður. Til framtíðar er heppilegast væri að leggja sjálfstæða peningastefnu til hliðar. Reynslan sýnir að hún skilar ekki árangri.

Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×