Skoðun

Baráttan innan Samfylkingar

Björn Ingi Hrafnsson skrifar
Það er skynsamlegt hjá Steinunni Valdísi Óskarsdóttur að tilkynna strax um framboð sitt. Aðeins liðu nokkrar klukkustundir frá því ákveðið var að viðhafa opið stuðningsmannaprófkjör í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og þar til Steinunn Valdís sendi frá sér yfirlýsingu um að hún byði sig fram til forystusætis. Þar með getur enginn sakað hana um að fara fram gegn einhverjum einum þingmanni eða þingkonu í prófkjörinu, því hún var fyrst fram á sviðið og slíkar tímasetningar geta einmitt ráðið úrslitum í heimi stjórnmálanna.

Steinunn Valdís gefur kost á sér í fjórða sætið í prófkjörinu og það þýðir að hún ætlar sér 2. sætið á öðrum framboðslistanum hjá flokknum í borginni. Við skulum því gefa okkur að hún telji öruggt að fyrir framan sig á listanum verði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir sem enn sem fyrr er talin ógnarsterk í prófkjörum. Samfylkingin fékk átta þingmenn í borginni í síðustu alþingiskosningum, fjóra í hvoru kjördæmi og telja fæstir að útkoman verði svo góð næsta vor. Er fremur talið líklegt að fimm til sjö þingmenn náist og það þýðir að ansi þröngt verður um marga núverandi þingmenn, t.d. Mörð Árnason, Helga Hjörvar, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, að ekki sé minnst á núverandi varaformann Samfylkingarinnar Ágúst Ólaf Ágústsson sem satt að segja gæti átt í verulegum vandræðum með að ná kjöri á eigin flokkslista, hvað þá aftur inn á þing.

Spurningin er líka hvort Steinunn Valdís verði sú eina sem geri tilkall inn á lista Samfylkingarinnar. Hvað mun t.d. Stefán Jón Hafstein gera? Eiríkur Bergmann Einarsson, Kristrún Heimisdóttir og Árni Páll Árnason munu víst líka vera að hugsa sinn gang og ég teldi reyndar að Árni Páll myndi vera Samfylkingunni geysilegur liðsauki. En ekkert af þessu fólki er ný stærð í pólitík eða óvænt stjarna, eins og margir Samfylkingarmenn vilja tefla fram. Leitin að slíkri stærð stendur því áfram yfir og þess vegna mun enn þrengja að þingmönnum og þingkonum á næstu dögum og vikum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×