Skoðun

Græðgin aðalhvati allra framfara?

Er græðgi góð? - Guðmundur Örn Jónsson  verkfræðingur Undanfarið hefur því verið haldið fram að græðgin sé aðalhvati framfara og að starfsemi sem ekki hafi eingöngu hagnað að markmiði virki illa. Þetta verði reglur samfélagsins að endurspegla svo hér geti orðið framfarir. Frjálshyggjan sé því lausnin og leggja verði mestan hluta af ríkinu niður. Jafnvel þótt stundum sé frjálshyggjan rökstudd með tilvitnunum í bíómyndir og sjaldnast með staðreyndum er ekki alveg víst að fólk átti sig á því að hún líkist frekar trúarbrögðum en vísindum. Reyndar leiðir frjálshyggjan sjaldnast til bættra lífskjara og lækkaði t.d. þjóðarframleiðsla í Rússlandi um 40% við öra einkavæðingu. Einn fremsti hagfræðingur Bretlands, John Kay, hefur einnig bent á að til séu lönd sem byggi að mestu á frjálshyggju. Þau hafa veikasta ríkisvaldið, eru í sunnanverðri Afríku og eru meðal fátækustu landa jarðarinnar. Fleiri dæmi eru um takmörk gróðafyrirtækja. T.d. er ríkisrekið raforkukerfi Frakklands hagkvæmara en einkarekið kerfi Bandaríkjanna, og háskólum í Bandaríkjunum sem reknir eru sem sjálfseignarstofnanir vegnar mun betur en þeim sem reknir eru sem gróðafyrirtæki. Enda hefur nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, Herbert Simon, sýnt fram á að það séu engin rök fyrir því að gróðafyrirtæki séu almennt betur rekin. Ástæðan fyrir verulegum takmörkum frjálshyggjunnar eru að forsendurnar sem hún byggir á eru sjaldnast til staðar. T.d. þarf fullkomna samkeppni á öllum sviðum, fólk þarf ætíð að hugsa rökrétt (sem myndi þýða að allir markaðsfræðingar væru atvinnulausir), allir þurfa alltaf að hafa allar upplýsingar um alla vöru og þjónustu og það má ekki kosta neitt að skrifa samninga. Til þess að bæta lífskjör þarf hagstjórn aftur á móti að byggja á markaðshagkerfi og þekkingu á takmörkunum þess, sem eru fjölmargir. Þjóðin þarf einnig að líta á sig sem eina liðsheild, alveg eins og fyrirtæki. Til þess þarf sameignlega menningu, trú, tungumál og siði og sameiginlegan skilning á því hvað er rétt og rangt. Aðeins þannig getum við auðveldlega átt viðskipti hvort við annað sem er forsenda framfara. Þetta hafa þeir John Kay og nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz, sem rannsakað hafa þær þjóðir sem best vegnar, ítrekað bent á. Frjálshyggjan og fjölmenningarsamfélagið eru aftur á móti þeir þættir sem líklegastir eru til að koma í veg fyrir þá þjóðfélagsmynd sem sem stuðlar að bættum lífskjörum. Á meðan höfðar hagfræði lítið til forustumanna Sjálfstæðisflokksins og uppnefna þeir hagfræðinga hagtækna. Þar mótast stefnan allt of mikið af einföldum lausnum sem helst rúmast í slagorðum eins og "græðgi er góð".



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×