Skoðun

Bara aðeins pínu eitt enn

Hafliði Helgason skrifar
Það er mikill áhugi á að byggjá álver á Íslandi og fram til þessa hefur verið mikill áhugi á að þau verði byggð á Íslandi. Álútflutningur frá Íslandi mun stóraukast á næstunni og við það eykst útflutningur á orku. Álútflutningur er nefnilega að stærstum hluta til útflutningur á orku. Hráefnið sem er ásamt orkunni stærsti kostnaðarliðurinn er innflutt. Álver skapa líka tiltölulega þokkalega borguð störf fyrir ófaglærða, rafiðnaðarmenn, stjórnendur og verkfræðinga. Þar með er nánast allt upp talið.

Miklar fjárfestingar í stjóriðjunni á skömmum tíma hafa hins vegar ýmsa galla í för með sér. Á meðan á framkvæmdum stendur styrkist krónan og eftirspurn eftir vinnuafli eykst. Á slíkum tímabilum er erfitt að vera sprotafyrirtæki og útflutningsfyrirtæki. Þar við bætist að útflutningur álsins í framhaldinu styður við styrk krónunnar og gerir öðrum mögulegum útflutningsgreinum erfitt fyrir. Þar getur jafnvel verið um að ræða greinar sem krefjast vinnuafls með meiri menntun og greiðir hærri laun en hráefnaiðnaður eins og álframleiðslan. Þetta ástand hefur verið nefnt hollenska veikin, en gasuppsprettur Hollendinga léku efnahagslíf þeirra grátt.

"To much of a good thing can be wonderful," sagði Mae West og vissulega má það til sanns vegar færa. Það er allavega ljóst að við njótum nú um stundir þess að blóðsykurinn er í háu gildi í blóðrás efnahagslífsins. Hættan liggur hins vegar í því að sykurfallið verði hratt og krefjist þá meiri sætinda í formi nýrra framkvæmda. Nýtt álver gæti því hentað vel stjórnvöldum sem vilja ekki hraða niðursveiflu efnahagslífsins í aðdraganda kosninga.

Of langt tímabil slíkrar inngjafar í efnahagslífið er þó líklega til þess fallið að draga úr hagvexti og hagsæld þegar til lengri tíma er litið. Með slíku áframhaldi gætu aðrar útflutningsgreinar farið illa og lífvænleg fyrirtæki lagt upp laupana. Þá væri líklega betra heima setið, en af stað farið í stóriðjuframkvæmdirnar.

Ríkisstjórnin segir núna: "bara eitt enn," eins og þegar maður seilist í einn lakkrís í pokanum. Hættan er bara sú að maður seilist í einn í viðbót og svo koll af kolli þar til allt er uppurið. Slíku fylgir gjarnan vindgangur, magapína og skert matarlyst á því sem stuðlar frekar að heilsu manns og þreki.

Það er nefnilega margt sem bendir til þess að sígandi lukka sé best og að þeim þjóðum vegni best sem rækta mannauð sinn og örva frjáls viðskipti. Fjárfestingum í stóriðju ætti því að stilla í hóf og ekki víst að það sé skynsamlegt í bili að fara í eitt álver enn.

[email protected]




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×