Skoðun

Amnesian mikla

Smám saman rifjast 18.mars 2003 upp fyrir Halldóri Ásgrímssyni. Svartur dagur. Þá urðu smásamtöl milli skrifstofumanna og ráðherra að smásímtali til Bandaríkjanna.   Í önn Halldórs þennan dag og lasleika Davíðs  fæddist ný utanríkisstefna á Íslandi, ný stoð fyrir eyðileggingarstríð gegn Írökum. Þetta var þó af þeim félögum talið slíkt smámál að ekki var metið til minnismiða, né heldur greindu þeir samherjum sínum frá bralli sínu og símamasi. Svo varð styrjöld.   Halldóri minnir að hann hafi aðallega samþykkt stríðsafnot af Keflavíkurvelli - eða var það nokkrum vikum fyrr sem það gerðist?  Ennfremur að vilja styðja uppbyggingu í Írak ef til stríðs kæmi,ef þess yrði þá þörf. Með fyrirhöfn rifjar hann upp þann vilja sinn að forseti Íraks færi frá völdum. Annað man Halldór ekki gjörla frá annadeginum 18.mars. Löngu seinna heyrði Halldór um einhvern lista. Listinn var ekki hans mál rifjar Halldór upp. Einhverjir aðrir sömdu listann ! Og settu hann á CNN !   Nokkrum  vikum seinna sýndi Davíð þá hreysti að segjast ekki harma þótt Sadam Hussein yrði fyrir kattarnef komið. Þá höfðu Bushdrengir einmitt sett fé til höfuðs forsetanum,honum skyldi náð lifandi eða helst dauðum. Á endanum var kallinn dreginn upp úr holu sinni. Sadam  tórir enn, nú í fangaholu. Betur hefði hann orðið að kattarmat samkvæmt ósk Davíðs því mikill vandi er að ákæra og dæma þennan mann. Írak er nú sem kunnugt er löglaust samfélag og því án dómsstóla. Varla sæmir að senda Sadam í hóp götustrákanna,sem pyntaðir eru í löglaust í Guantanamo. Enn er réttarhöldum yfir Sadam nú frestað um ár í voninni að hann drepist. Alls ekki má nefna Alþjóðastríðsglæpadómsstól, stofnun sem  Rumsfeld óttast manna mest.  Matröð Rumsfelds er að verða þar klefafélagi Sadams og að alþjóðaglæpalög virki.   Amnesian er alvarleg því gleymst hefur sjálf veraldardeilan í mars 2003, deilan um það hvort grundvöllur væntanlegar  innrásar, gereyðingarvopn og meint hryðjuverkahreiður í Írak væri argasti lygauppspuni eða sannleikur. Aldrei gat líf eða dauði einnar persónu orðið orsök að eyðileggingarstríði sem sýnt var að mundi skaða milljónir manna.  En í minningarbrotum Halldórs Ásgrímssonar skín aðeins á eitt þeirra: Sadam Hussein.   Þannig ruglar Halldór saman í höfði sér persónulegri hefndarþráhyggju Bushfeðga og því málefni, sem réttlæta átti heilan styrjaldarrekstur gegn fullvalda þróunarlandi. Er þetta nýr minnisruglingur hjá Halldóri Ásgrímssyni eða upphaflegur miskilningur hans? Engir minnismiðar finnast, enginn stafkrókur, ekkert sem hjálpað getur Halldóri.   Kveðja: Baldur Andrésson



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×