Skoðun

Hjónabandið er heilagt og biblían óskeikul

Tvær ástæður eru mér ofarlega í huga þegar ég finn mig knúinn sem kristinn mann til þess að styðja réttindabaráttu samkynhneigðra. Annarsvegar hef ég þá vissu að hjónabandið sé heilagt, og hinsvegar þá trú að biblían sé óskeikul.

Það er kristin trú og almenn reynsla að hjónabandið er heilagt. Trúnaðurinn sem ríkir milli maka, virðingin og kærleikurinn sem skapast í gagnkvæmu trausti og samhjálp gerir hjónabandið heilagt. "Heilagt hjónaband" segjum við og meinum það skjól sem við finnum, öryggið sem ríkir á heimili góðra hjóna. Þannig verður heimilið líka helgidómur, því helgidómur er einfaldlega staður þar sem er pláss fyrir fólk og gott er að vaxa og dafna. Heilagleiki hjónabands og heimilis er þannig hagnýtt hugtak og við vitum vel hvað það merkir. Þessi heilagleiki ræðst hvorki af líkamsbyggingu hjónanna sem á heimilinu búa né heldur af kirkjulegum athöfnum eins og hjónavígslu. Hið heilaga hjónaband stafar af gagnkvæmum og langreyndum trúnaði, ást og virðingu sem kemur líkamsgerð hjónanna, kynferði þeirra og hugsanlegum kirkjuferðum ekkert sérstaklega við.

Í annan stað skiptir mig miklu að taka fram að það er kristin trú að biblían er óskeikul. Biblían bendir óskeikullega á Jesú Krist og þá nýju lífsmöguleika sem allri veröld er boðið vegna hans. Án alls vafa bendir biblían á Jesú Krist sem gefið hefur líf sitt fyrir heiminn og sigrað dauðann í upprisu sinni, svo að við megum óhrædd lifa og getum óhrædd dáið í trú á hann. Óskeikulleiki heilagrar ritningar er þannig fólginn í erindi hennar, fagnaðarerindinu, en ekki í bókstöfunum sem í bókinni standa. Gleðifrétt kristinnar trúar er sú að Guð hefur sætt heiminn við sig og gerst einn af okkur svo að við megum kannast hvað við annað. Okkur er óhætt að opna augun betur og betur fyrir þeirri staðreynd að við erum á samleið með öllu sem lifir, öllum manneskjum, dýrum og annari náttúru.

Því er það kristin sannfæring mín að kirkja Jesú hljóti að virða réttindi og skyldur samkynhneigðra para, nú, þegar sú einfalda vitneskja er orðin almenningseign að samkynhneigð er hluti af hinni dásamlegu fjölbreytni sköpunarverksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×