Skoðun

Vandaðra – hollara – betra

Val okkar í neyslusamfélaginu hefur mikil áhrif á umhverfi okkar. Áhrifanna gætir ekki einungis í okkar nánasta umhverfi, heldur höfum við talsverð áhrif langt út fyrir landsteinana. Hnattvæðingin hefur þau áhrif að við höfum aðgang að varningi sem við kunnum ekki deili á hvað varðar framleiðsluferli, aðbúnað starfsfólks, mengun af völdum framleiðslu eða hversu langar vegalengdir varan hefur verið flutt áður en hún hafnar í okkar höndum. Afleiðingin er sú að við erum ekki meðvituð um það hver "umhverfiskostnaður" vörunnar er í raun.

Nú nálgast hátíð ljóss og friðar í menningu okkar Vesturlandabúa með tilheyrandi áti. Undirbúningnum fylgja stórinnkaup á matvöru, gjafavöru og ýmiss konar skrauti sem tilheyra þykir hátíðunum. Álagið eykst á þá sem veita heimilunum forstöðu, tími til samveru og gæðastunda minnkar hröðum skrefum er nær dregur jólum. Þetta skellur á í okkar myrkasta mánuði, þeim árstíma sem við þyrftum einna helst að forgangsraða og skynja það að við höfum eitthvað um lífsstílinn að segja. Jólastressið og ruslið sem hátíðunum fylgir hafa verið umkvörtunarefni, en það er neikvæða hliðin á hátíðahöldunum.

Við getum minnkað álagið með því að spyrja okkur þeirrar krefjandi spurningar hvort þörf sé á öllu þessu? Hugsanlega má draga úr útgjöldum, þeytingi og streitu við öflun "nauðsynjanna" með meðvitaðra vali á matvælum, gjafavöru og fylgihlutum. Nei takk! Sama og þegið gæti verið svarið við stöðugu áreiti öflugrar markaðssetningar misnauðsynlegrar vöru.

Ábatinn af meðvituðu vali dregur úr neyslu með auknum gæðum samverustunda á aðventunni. Samverustundirnar yrðu fleiri á kostnað þess að þeytast um borg og bæ í leit að "hlutnum". Inntak staðardagskrárinnar sem hljóðar svo upp á enskuna "Think global act local" á hér vel við, enda handhægast að stuðla að bættu hnattrænu umhverfi með aðgerðum í heimabyggð og meðvitaðri daglegri neyslu.

Umhverfismál eru heilbrigðismál. Umhverfismál hafa áhrif á heilsu okkar, jafnt líkamlega sem andlega. Nú nálgast sú hátíð sem einna mest reynir á andlega heilsu landsmanna. Áður óttuðust menn það að fara í jólaköttinn ef þeir fengu ekki nýja flík fyrir jólin. Í dag er það öllu heldur stressið sem vofir yfir. Einkunnarorðunum hærra - hraðar -  meira mætti gjarnan skipta út fyrir vandaðra - hollara - betra. Meðvitað val á því sem endar á jólaborðinu, í jólapakkanum og gagnrýnin hugsun með virðingu fyrir umhverfinu og okkur sjálfum gæti leitt til afslappaðri og innihaldsríkari samveru. Ávinningurinn yrði betra umhverfi, minni mengun, minna af rusli og fallegri jól. Hið einfalda lögmál hönnunar "Minna er meira" á hér einnig við, og er ágætis leiðarljós við hönnun jólanna í ár.

Höfundur er landslagsarkitekt hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×