Skoðun

Nýtt hátæknisjúkrahús

Fyrir skömmu síðan var Síminn seldur á markaði fyrir um 67 milljarða. Fjármagnið mun nýtast í fjölmörg mikilvæg samfélagsverkefni á næstu árum sem ella hefði ekki verið svigrúm til að ráðast í að sinni. Eitt slíkt samfélagsverkefni er uppbygging nýs hátæknisjúkrahúss í Vatnsmýrinni í tengslum við þá sjúkrahús- og háskólastarfsemi sem þar er fyrir á vegum Landspítala - háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands.

Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, kynnti á dögunum niðurstöður úr alþjóðlegri hönnunarsamkeppni þar sem nýja hátæknisjúkrahúsið var sýnt í líkani og á kortum í fyrsta sinn. Fjármagnið sem fékkst úr Símasölunni mun renna til byggingar fyrsta áfanga, þ.e. slysa- og bráðaþjónustu og aðstöðu fyrir rannsóknarstarfsemi. Ljóst er af kynningunni að nýja sjúkrahúsið verður stórkostlegt framfaraspor í heilbrigðismálum þjóðarinnar.

Aðstaða fyrir sjúklinga og starfsmenn mun verða eins og best þekkist á þessu sviði. Ungbarnadauði og lífslíkur á Íslandi Í dag er heilbrigðismálum þjóðarinnar afar vel sinnt. Þeir mælikvarðar sem helst eru notaðir til að meta stöðu heilbrigðismála milli landa eru ungbarnadauði og lífslengd íbúanna. Hér á landi er ungbarnadauði sá minnsti sem þekkist á hnattræna vísu og ævilengd sú lengsta meðal karlmanna sem þekkist og sjötta lengsta meðal kvenna. Nýja sjúkrahúsið mun auka líkurnar á að við munum áfram vera meðal fremstu þjóða hvað heilbrigðisþjónustu varðar.

Á Íslandi er almenn samstaða um að heilbrigðisþjónustan sé almannaþjónusta að mestu leyti þ.e. að verulegur hluti skattgreiðslna renni til að standa undir henni. Hinsvegar er nauðsynlegt að gera kröfur til að fjármagninu sé vel varið, en nú fara um 40 prósent af útgjöldum ríkisins til heilbrigðis- og tryggingamála. Á næsta ári verður líklega um 700 milljóna króna raunaukningu til heilbrigðis- og tryggingamála að ræða. Dæmi um lykiltölur eru að það kostar um 5 milljónir króna að reka eitt hjúkrunarpláss á ári og um 22 milljónir króna að reka eitt almennt sjúkrahúspláss á Landspítala - háskólasjúkrahúsi á ári.

Að undanförnu hefur mikill árangur náðst í rekstri Landspítala - háskólasjúkrahúss eins og fram kom í fréttum í haust. Þar kom fram að gjöld sjúkrahússins á fyrri helmingi ársins námu 14.367 milljónum króna en tekjur 14.288 milljónum króna. Gjöld eru því 79 milljónum króna umfram tekjur eða 0,55 prósent. Rekstur þess á fyrri helmingi ársins er því nánast í jafnvægi, enda nemur frávik minna en einu prósenti af rúmlega 14 milljarða króna veltu. Af þessu er ljóst að umskipti hafa orðið í fjármálastjórnun sjúkrahússins, þ.e. ef áætlanir halda áfram að standast næstu misserin. Ástæða er til að fagna bættum rekstri sjúkrahússins og þeirri ákvörðun stjórnvalda að hefja uppbyggingu nýs hátæknisjúkrahúss í Vatnsmýrinni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×