Matur

Sérrífrómas með muldum makkarónum

Sérrífrómas er algengur eftirréttur á jólaborðum landsmanna. Ekki kunna þó allir að búa hann til. Björn Bragi Bragason, matreiðslumaður í Perlunni, gerir hann á þann hátt sem hér er lýst svo nú getum við hin farið að spreyta okkur.

Sherry truffle

8 egg

250 g sykur

7 blöð matarlím

1 dl sætt sérrí t.d. Bristol Cream

1 l lausþeyttur rjómi

súkkulaðispænir eftir smekk.

Leggið matarlímið í kalt vatn. Eggin og sykurinn eru þeytt í ljósa froðu. Matarlímið er leyst upp í sérríinu og bætt út í eggin með sleif. Svo er rjómanum blandað saman við en passa verður að hafa hann ekki of stífan. Í lokin eru súkkulaðispænir settir yfir og skvetta af sérríi ef fólk vill.

Botn

Muldar makkarónur

sveskjusulta

Skvetta af sérríi

Makkarónurnar eru muldar í skál og blandað með sultunni og sherryinu. Það er ýmist hægt að hafa þetta í botninum eða lagskipt.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.