Hjálmari ekki falin ábyrgðastörf 1. október 2004 00:01
Hjálmari Árnasyni, alþingismanni, verða ekki falin ábyrgðastörf á vegum Samtaka herstöðvaandstæðinga í framtíðinni. Var það samþykkt á fundi miðnefndar SHA í fyrradag og ennfremur að hann fái ekki Dagfara, tímarit samtakanna, sent heim. Er honum þó að fullu heimilt að sækja sér eintök á skrifstofu samtakanna. Ástæður þessa eru einkum þrjár. Í fyrsta lagi vegna ítrekaður stuðningur Hjálmars við stríðsrekstur og sprengjuárásir í fjarlægum löndum. Í öðru lagi yfirlýst afstaða hans um að Íslendingar skuli fylgja árásarstefnu Bandaríkjastjórnar í því skyni að skæla út áframhaldandi dvöl hersins á Miðnesheiði. Og í þriðja lagi margra ára afskiptaleysi Hjálmars af samkomum og aðgerðum samtakanna. Í tilkynningu SHA er tekið fram að með þessu sé ekki verið að reka Hjálmar úr samtökunum en áframhaldandi aðild verði hann að eiga við eigin samvisku. Hjálmar Árnason var virkur í starfi herstöðvaandstæðinga á sínum yngri árum og gekk meðal annars Keflavíkurgöngur þar sem veru hersins á Miðnesheiði var mótmælt og úrsagnar úr NATÓ krafist. Samþykkt SHA er í anda yfirlýsinga Hjálmars vegna stóra Kristins H. málsins.
Framsóknarflokkurinn Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Erlent "Borgin er ekki að veita Bíó Paradís styrk“ Innlent Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Innlent Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Erlent Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Innlent Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Innlent Boða tíma „stöðugleika og friðar“ Erlent Hefði átt að vera ljóst að logandi pappír í skáp gæti endað með bruna Innlent Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Innlent Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Innlent Fleiri fréttir Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Líkamsárásir, þjófnaðir og rúðubrot Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Óánægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægivald“ Viku frestur til að kæra kosningarnar Innan við þriðjungur þingmanna hefur setið lengur en eitt kjörtímabil Bjartsýn á að til verði stjórn sem þori að taka ákvarðanir Hefði átt að vera ljóst að logandi pappír í skáp gæti endað með bruna Vill aukinn viðbúnað á Íslandi til að bregðast við ófyrirséðum árásum Áhrif hallareksturs ríkissjóðs á stjórnarmyndun og jólaskrautsgerð fanga Fráfarandi stjórn skilji eftir verra bú en haldið er fram Afkomuhorfur ríkissjóðs lakari en áður Grétar Snær höfuðkúpubrotnaði í Taílandi Sjálfstæðismenn í sérflokki hvað útstrikanir varðar Birta nöfn og vörumerki tengd SVEIT í mótmælaskyni „Sannleikurinn oft fyrsta fórnarlambið“ Evrópuþingmenn hvetja yfirvöld til að láta af hvalveiðum „Mikilvægt fyrir dalinn að það sé komin ákvörðun“ Kannabissérfræðingurinn kom að ræktun á öðrum sveitabæ Lýsa eftir vitnum að meintri líkamsárás á Ísafirði Hundarnir áttu ekki að vera saman Þrír hópar vinna að málefnum fyrir nýja ríkisstjórn Stjórnarmyndun og árásargjarnir hundar í Laugardal BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu Um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu ríkisins Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk Gera kröfu um að varaaflsstöðin verði áfram í Vík Sjá meira