Innlent „Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu 12. Innlent 23.11.2024 11:52 Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var ekki viðstaddur eina atkvæðagreiðslu á nýliðnu þingi sem var sett í september og slitið á mánudaginn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var aðeins viðstödd eina atkvæðagreiðslu þar sem hún greiddi atkvæði með beiðni um skýrslu í tengslum við aðgerðir fyrir Grindvíkinga. Innlent 23.11.2024 11:44 Styrkja möstrin með möl eftir góða vinnu í nótt Vinna við að verja tvær stæður á Svartsengislínu gegn hraunflæði úr Sundhnúkagígum, hófst aftur nú í morgun. Vel gekk að verja stæðurnar í nótt, með aðstoð Brunavarna Suðurnesja. Innlent 23.11.2024 11:19 Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað „Þetta er auðvitað svakalegt áfall. Þetta gerðist allt svo hratt og allt í einu stóð maður uppi nánast allslaus,“ segir Ellert Grétarsson ljósmyndari sem missti heimili sitt í bruna fyrir tveimur árum. Ástæða brunans var sú að kveikt var á fjöltengi inni í stofunni. Innlent 23.11.2024 08:05 Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir hlutverk leiðtoga stjórnmálaflokkanna í öflun vinsælda flokkanna stórlega ofmetið. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn bítist nú á um 30 prósenta fylgi hægriflokka á Íslandi en nái ekki út fyrir þann bergmálshelli. Innlent 23.11.2024 08:03 Braut rúðu í lögreglubíl Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt var mikið af útköllum í miðbænum vegna ölvunar og óláta. Þá barst einnig tilkynning um hópslagsmál þar og að minnsta kosti eina líkamsárás. Innlent 23.11.2024 07:34 Stöðugt gos og engir skjálftar Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og hefur virknin verið stöðug í nótt. Mest er hún sögð við miðbik gossprungunnar og hafa engir jarðskjálftar mælst í nótt. Innlent 23.11.2024 07:16 „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Snorri Másson ber Ríkisútvarpið þungum sökum í nýju myndbandi sem farið hefur eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Hann segir fjölmiðilinn vera líklega einna lengst til vinstri á hinum pólitíska kvarða á Íslandi, og segir hann hafa fjallað undarlega um Miðflokkinn á Tiktok. Innlent 22.11.2024 23:34 Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Til stendur að opna Bláa lónið aftur fyrir gestum 29. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var til viðskiptavina. Innlent 22.11.2024 21:50 Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Rafmagnsmastur frá Landsneti er í hættu vegna hraunflæðis frá eldgosinu við Sundhnúksgíga. Slökkvistarf er enn í gangi, en erfiðlega hefur gengið að fá vatn á svæðið. Innlent 22.11.2024 21:27 Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Jasmina Vajovic Crnac, sem sóttist eftir oddvitasæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi en fékk ekki sæti á lista, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir framboðslista Viðreisnar ekki endurspegla fjölbreytileikann sem þau tala fyrir. Hún segist svikin af flokknum. Innlent 22.11.2024 20:38 Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Kennarasamband Íslands hefur sent borgarstjóra og bæjarstjórum á Seltjarnarnesi, Sauðárkróki og í Reykjanesbæ erindi þar sem segir að sambandið sé reiðubúið að aflýsa verkföllum í leikskólunum fjórum þar sem verkföll hafa staðið yfir síðan 29. október. Innlent 22.11.2024 19:26 Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01 Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Verkföll hafa verið boðuð í tíu leikskólum 10. desember næstkomandi, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Innlent 22.11.2024 18:52 Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Viðbúnaðarstig almannavarna hefur verið fært niður á hættustig og stöðug virkni er í gosinu. Björgunarsveitir hafa þurft að vísa ferðamönnum frá gosstöðvum og varað er við hættu á svæðinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni útsendingu frá gosstöðvum og ræðum við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 22.11.2024 18:02 Atburðarás gærdagsins í myndum Eldgos hófst á Sundhnúkagígaröðinni klukkan 23:14 síðastliðinn miðvikudag. Nóttin var ekki úti þegar hraun hafði flætt yfir Grindavíkurveg, og snemma morguns á fimmtudag var hraun komið yfir Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Æðin hélt þó. Innlent 22.11.2024 16:33 Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Karlmanni á áttræðisaldri er gert að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna umferðarlagabrota og vopnalagabrots, en hann var sýknaður af ákæru um að ógna lífi og heilsu bóndahjóna með vítaverðum akstri. Innlent 22.11.2024 15:43 Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Virkni í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina er enn nokkuð mikil. Nú er virkni í þremur gígum en á sama tíma hefur nokkuð hægt á framrás hrauntungu við Svartsengi. Í nýrri uppfærslu Veðurstofunnar segir að frá því í gær hafi þrjú svæði verið virk á gossprungunni á milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells. Innlent 22.11.2024 15:39 Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Ný könnun leiðir í ljós að mikill meirihluti spurðra er andvígur fyrirhuguðu 10 þúsund tonna laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði. Innlent 22.11.2024 15:06 Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Bæjarfulltrúi Íbúalistans í Ölfusi segir að íbúafundur sem haldinn var í gærkvöldi hafi ekki verið til þess falinn að auka trúverðugleika skipulagsferlis í máli sem varðar mölunarverksmiðju Heidelbergs. Innlent 22.11.2024 14:36 FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Félag atvinnurekenda hefur sent umboðsmanni Alþingis kvörtun vegna reglugerðar Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, sem hann undirritaði í lok október. Félagið telur ráðherra, sem nú situr í starfsstjórn, ganga alltof langt í forræðishyggjuátt og að hann troði meðal annars á stjórnarskrárvörðum eignar- og atvinnuréttindum. Innlent 22.11.2024 14:13 Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Maður sem grunaður er um umfangsmikil rán og þjófnað á höfuðborgarsvæðinu var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Er það eftir að nokkur hundruð kíló af kjötvörum, fatnaði, raftækjum og öðru fannst á heimili hans. Innlent 22.11.2024 13:47 Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík Losun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um tæp tvö og hálft prósent í Reykjavík í fyrra. Meirihluti losunarinnar kemur frá samgöngum og byggingariðnaði. Bílaumferð í Reykjavík einni og sér var uppspretta um tíu prósenta samfélagslosunar á Íslandi. Innlent 22.11.2024 13:29 „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að þrátt fyrir dramatíska atburðarás þegar bílastæði lónsins fór undir hraun í gær, standi allt athafnasvæði lónsins styrkum fótum. Innlent 22.11.2024 13:18 Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Undirbúningur gengur vel við Rockville borholuna á Reykjanesi og standa vonir til að hún verði tilbúin til notkunar í janúar á næsta ári. Þetta kom fram í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í morgun. Innlent 22.11.2024 13:18 Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. Innlent 22.11.2024 13:17 Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Gist var í um tuttugu húsum í Grindavík í nótt og starfsemi er í einhverjum fyrirtækjum í bænum. Almannavarnir fylgjast vel með Njarvíkuæð sem er undir hrauni en segja ómögulegt að vita hversu mikinn þunga eða hita hún þolir. Innlent 22.11.2024 12:59 Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um eldsumbrotin á Reykjanesi en nokkrir gistu í Grindavík í nótt og létu eldhræringarnar ekki hafa áhrif á sig. Innlent 22.11.2024 11:39 Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir ellefu í dag vegna reyks við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innlent 22.11.2024 11:13 Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni. Innlent 22.11.2024 11:09 « ‹ 3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 334 ›
„Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu 12. Innlent 23.11.2024 11:52
Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var ekki viðstaddur eina atkvæðagreiðslu á nýliðnu þingi sem var sett í september og slitið á mánudaginn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var aðeins viðstödd eina atkvæðagreiðslu þar sem hún greiddi atkvæði með beiðni um skýrslu í tengslum við aðgerðir fyrir Grindvíkinga. Innlent 23.11.2024 11:44
Styrkja möstrin með möl eftir góða vinnu í nótt Vinna við að verja tvær stæður á Svartsengislínu gegn hraunflæði úr Sundhnúkagígum, hófst aftur nú í morgun. Vel gekk að verja stæðurnar í nótt, með aðstoð Brunavarna Suðurnesja. Innlent 23.11.2024 11:19
Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað „Þetta er auðvitað svakalegt áfall. Þetta gerðist allt svo hratt og allt í einu stóð maður uppi nánast allslaus,“ segir Ellert Grétarsson ljósmyndari sem missti heimili sitt í bruna fyrir tveimur árum. Ástæða brunans var sú að kveikt var á fjöltengi inni í stofunni. Innlent 23.11.2024 08:05
Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir hlutverk leiðtoga stjórnmálaflokkanna í öflun vinsælda flokkanna stórlega ofmetið. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn bítist nú á um 30 prósenta fylgi hægriflokka á Íslandi en nái ekki út fyrir þann bergmálshelli. Innlent 23.11.2024 08:03
Braut rúðu í lögreglubíl Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt var mikið af útköllum í miðbænum vegna ölvunar og óláta. Þá barst einnig tilkynning um hópslagsmál þar og að minnsta kosti eina líkamsárás. Innlent 23.11.2024 07:34
Stöðugt gos og engir skjálftar Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og hefur virknin verið stöðug í nótt. Mest er hún sögð við miðbik gossprungunnar og hafa engir jarðskjálftar mælst í nótt. Innlent 23.11.2024 07:16
„RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Snorri Másson ber Ríkisútvarpið þungum sökum í nýju myndbandi sem farið hefur eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Hann segir fjölmiðilinn vera líklega einna lengst til vinstri á hinum pólitíska kvarða á Íslandi, og segir hann hafa fjallað undarlega um Miðflokkinn á Tiktok. Innlent 22.11.2024 23:34
Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Til stendur að opna Bláa lónið aftur fyrir gestum 29. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var til viðskiptavina. Innlent 22.11.2024 21:50
Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Rafmagnsmastur frá Landsneti er í hættu vegna hraunflæðis frá eldgosinu við Sundhnúksgíga. Slökkvistarf er enn í gangi, en erfiðlega hefur gengið að fá vatn á svæðið. Innlent 22.11.2024 21:27
Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Jasmina Vajovic Crnac, sem sóttist eftir oddvitasæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi en fékk ekki sæti á lista, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir framboðslista Viðreisnar ekki endurspegla fjölbreytileikann sem þau tala fyrir. Hún segist svikin af flokknum. Innlent 22.11.2024 20:38
Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Kennarasamband Íslands hefur sent borgarstjóra og bæjarstjórum á Seltjarnarnesi, Sauðárkróki og í Reykjanesbæ erindi þar sem segir að sambandið sé reiðubúið að aflýsa verkföllum í leikskólunum fjórum þar sem verkföll hafa staðið yfir síðan 29. október. Innlent 22.11.2024 19:26
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01
Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Verkföll hafa verið boðuð í tíu leikskólum 10. desember næstkomandi, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Innlent 22.11.2024 18:52
Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Viðbúnaðarstig almannavarna hefur verið fært niður á hættustig og stöðug virkni er í gosinu. Björgunarsveitir hafa þurft að vísa ferðamönnum frá gosstöðvum og varað er við hættu á svæðinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni útsendingu frá gosstöðvum og ræðum við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 22.11.2024 18:02
Atburðarás gærdagsins í myndum Eldgos hófst á Sundhnúkagígaröðinni klukkan 23:14 síðastliðinn miðvikudag. Nóttin var ekki úti þegar hraun hafði flætt yfir Grindavíkurveg, og snemma morguns á fimmtudag var hraun komið yfir Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Æðin hélt þó. Innlent 22.11.2024 16:33
Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Karlmanni á áttræðisaldri er gert að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna umferðarlagabrota og vopnalagabrots, en hann var sýknaður af ákæru um að ógna lífi og heilsu bóndahjóna með vítaverðum akstri. Innlent 22.11.2024 15:43
Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Virkni í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina er enn nokkuð mikil. Nú er virkni í þremur gígum en á sama tíma hefur nokkuð hægt á framrás hrauntungu við Svartsengi. Í nýrri uppfærslu Veðurstofunnar segir að frá því í gær hafi þrjú svæði verið virk á gossprungunni á milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells. Innlent 22.11.2024 15:39
Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Ný könnun leiðir í ljós að mikill meirihluti spurðra er andvígur fyrirhuguðu 10 þúsund tonna laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði. Innlent 22.11.2024 15:06
Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Bæjarfulltrúi Íbúalistans í Ölfusi segir að íbúafundur sem haldinn var í gærkvöldi hafi ekki verið til þess falinn að auka trúverðugleika skipulagsferlis í máli sem varðar mölunarverksmiðju Heidelbergs. Innlent 22.11.2024 14:36
FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Félag atvinnurekenda hefur sent umboðsmanni Alþingis kvörtun vegna reglugerðar Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, sem hann undirritaði í lok október. Félagið telur ráðherra, sem nú situr í starfsstjórn, ganga alltof langt í forræðishyggjuátt og að hann troði meðal annars á stjórnarskrárvörðum eignar- og atvinnuréttindum. Innlent 22.11.2024 14:13
Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Maður sem grunaður er um umfangsmikil rán og þjófnað á höfuðborgarsvæðinu var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Er það eftir að nokkur hundruð kíló af kjötvörum, fatnaði, raftækjum og öðru fannst á heimili hans. Innlent 22.11.2024 13:47
Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík Losun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um tæp tvö og hálft prósent í Reykjavík í fyrra. Meirihluti losunarinnar kemur frá samgöngum og byggingariðnaði. Bílaumferð í Reykjavík einni og sér var uppspretta um tíu prósenta samfélagslosunar á Íslandi. Innlent 22.11.2024 13:29
„Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að þrátt fyrir dramatíska atburðarás þegar bílastæði lónsins fór undir hraun í gær, standi allt athafnasvæði lónsins styrkum fótum. Innlent 22.11.2024 13:18
Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Undirbúningur gengur vel við Rockville borholuna á Reykjanesi og standa vonir til að hún verði tilbúin til notkunar í janúar á næsta ári. Þetta kom fram í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í morgun. Innlent 22.11.2024 13:18
Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. Innlent 22.11.2024 13:17
Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Gist var í um tuttugu húsum í Grindavík í nótt og starfsemi er í einhverjum fyrirtækjum í bænum. Almannavarnir fylgjast vel með Njarvíkuæð sem er undir hrauni en segja ómögulegt að vita hversu mikinn þunga eða hita hún þolir. Innlent 22.11.2024 12:59
Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um eldsumbrotin á Reykjanesi en nokkrir gistu í Grindavík í nótt og létu eldhræringarnar ekki hafa áhrif á sig. Innlent 22.11.2024 11:39
Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir ellefu í dag vegna reyks við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innlent 22.11.2024 11:13
Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni. Innlent 22.11.2024 11:09