Erlent Spá 700 þúsund dauðsföllum í Evrópu og Asíu að óbreyttu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar nú við því að allt að 700 þúsund einstaklingar gætu látið lífið í Evrópu og hluta Asíu ef ekki tekst að hægja á kórónuveirufaraldrinum á svæðinu. Erlent 24.11.2021 07:36 Átta ára drengur látinn eftir ódæðið í Wisconsin Sjötta manneskjan er nú látin eftir að maður ók bíl sínum í gegnum jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum á sunnudag. Um var að ræða átta ára dreng. Erlent 23.11.2021 23:45 Dæmdur morðingi Meredith Kercher laus allra mála Karlmaður sem var dæmdur fyrir morðið á Meredith Kercher, 21 árs gömlum breskum skiptinema, er nú laus allra mála eftir að hafa afplánað þrettán ár af sextán ára fangelsisdómi. Morðið vakti heimsathygli en Amanda Knox, sambýliskona Kercher, og kærasti hennar sátu í fangelsi í fjögur ár áður en þau voru sýknuð. Erlent 23.11.2021 15:03 Lýðræði talið fara hnignandi í Bandaríkjunum í fyrsta sinn Bandaríkin eru í fyrsta skiptin talin á meðal ríkja þar sem lýðræði fer hnignandi í skýrslu norrænnar hugveitu um stöðu lýðræðis í heiminum. Meiri en helmingur ríkja heims er talinn í sömu sporum og Bandaríkin. Erlent 23.11.2021 13:13 Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni. Erlent 23.11.2021 12:05 Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun. Erlent 23.11.2021 11:50 Höfðar mál eftir að hafa verið ranglega vistaður á geðdeild í tæp þrjú ár Joshua Spriestersbach, var handtekinn fyrir mistök á Honolúlú árið 2017 og vistaður á geðdeild í nærri því þrjú ár, því lögreglan fór mannavillt. Hann hefur nú höfðað mál gegn yfirvöldum á Havaí-eyjum, lögregluþjónum, lögmönnum og læknum sem að máli hans komu. Erlent 23.11.2021 10:42 Katarar létu njósna um forystumenn FIFA Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar. Erlent 23.11.2021 10:18 Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól. Erlent 23.11.2021 08:45 Ein ötulasta baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum látin Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri. Erlent 23.11.2021 08:37 Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu er látinn Chun Doo-hwan, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, lést í morgun, níutíu ára að aldri. Erlent 23.11.2021 07:33 Spacey dæmdur til að greiða framleiðendum House of Cards fjóra milljarða Gerðardómur hefur ákveðið að leikarinn Kevin Spacey eigi að greiða MRC kvikmyndaverinu 31 milljón dala í skaðabætur fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum samnings síns við framleiðslu á þáttunum House of Cards, sem sýndir voru á Netflix. Erlent 23.11.2021 07:31 Að minnsta kosti 45 látnir eftir rútubruna í Búlgaríu Að minnsta kosti 45 létu lífið í rútuslysi í Búlgaríu í nótt. Slysið varð á hraðbraut í vesturhluta landsins en rútan er sögð hafa ekið á vegrið með þeim afleiðingum að mikill eldur kom upp í henni. Erlent 23.11.2021 06:51 Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað. Erlent 22.11.2021 23:46 Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“ Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag. Erlent 22.11.2021 22:37 „Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“ Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“. Erlent 22.11.2021 15:53 Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. Erlent 22.11.2021 15:19 Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil. Erlent 22.11.2021 14:59 Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. Erlent 22.11.2021 14:05 Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. Erlent 22.11.2021 13:05 Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 22.11.2021 12:03 Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. Erlent 22.11.2021 11:50 SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust. Erlent 22.11.2021 11:50 Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði. Erlent 22.11.2021 10:28 Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði. Erlent 22.11.2021 07:40 Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. Erlent 22.11.2021 07:00 Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. Erlent 22.11.2021 06:40 Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. Erlent 21.11.2021 23:31 Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. Erlent 21.11.2021 22:54 Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit. Erlent 21.11.2021 16:51 « ‹ 326 327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Spá 700 þúsund dauðsföllum í Evrópu og Asíu að óbreyttu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar nú við því að allt að 700 þúsund einstaklingar gætu látið lífið í Evrópu og hluta Asíu ef ekki tekst að hægja á kórónuveirufaraldrinum á svæðinu. Erlent 24.11.2021 07:36
Átta ára drengur látinn eftir ódæðið í Wisconsin Sjötta manneskjan er nú látin eftir að maður ók bíl sínum í gegnum jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum á sunnudag. Um var að ræða átta ára dreng. Erlent 23.11.2021 23:45
Dæmdur morðingi Meredith Kercher laus allra mála Karlmaður sem var dæmdur fyrir morðið á Meredith Kercher, 21 árs gömlum breskum skiptinema, er nú laus allra mála eftir að hafa afplánað þrettán ár af sextán ára fangelsisdómi. Morðið vakti heimsathygli en Amanda Knox, sambýliskona Kercher, og kærasti hennar sátu í fangelsi í fjögur ár áður en þau voru sýknuð. Erlent 23.11.2021 15:03
Lýðræði talið fara hnignandi í Bandaríkjunum í fyrsta sinn Bandaríkin eru í fyrsta skiptin talin á meðal ríkja þar sem lýðræði fer hnignandi í skýrslu norrænnar hugveitu um stöðu lýðræðis í heiminum. Meiri en helmingur ríkja heims er talinn í sömu sporum og Bandaríkin. Erlent 23.11.2021 13:13
Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni. Erlent 23.11.2021 12:05
Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun. Erlent 23.11.2021 11:50
Höfðar mál eftir að hafa verið ranglega vistaður á geðdeild í tæp þrjú ár Joshua Spriestersbach, var handtekinn fyrir mistök á Honolúlú árið 2017 og vistaður á geðdeild í nærri því þrjú ár, því lögreglan fór mannavillt. Hann hefur nú höfðað mál gegn yfirvöldum á Havaí-eyjum, lögregluþjónum, lögmönnum og læknum sem að máli hans komu. Erlent 23.11.2021 10:42
Katarar létu njósna um forystumenn FIFA Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar. Erlent 23.11.2021 10:18
Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól. Erlent 23.11.2021 08:45
Ein ötulasta baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum látin Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri. Erlent 23.11.2021 08:37
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu er látinn Chun Doo-hwan, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, lést í morgun, níutíu ára að aldri. Erlent 23.11.2021 07:33
Spacey dæmdur til að greiða framleiðendum House of Cards fjóra milljarða Gerðardómur hefur ákveðið að leikarinn Kevin Spacey eigi að greiða MRC kvikmyndaverinu 31 milljón dala í skaðabætur fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum samnings síns við framleiðslu á þáttunum House of Cards, sem sýndir voru á Netflix. Erlent 23.11.2021 07:31
Að minnsta kosti 45 látnir eftir rútubruna í Búlgaríu Að minnsta kosti 45 létu lífið í rútuslysi í Búlgaríu í nótt. Slysið varð á hraðbraut í vesturhluta landsins en rútan er sögð hafa ekið á vegrið með þeim afleiðingum að mikill eldur kom upp í henni. Erlent 23.11.2021 06:51
Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað. Erlent 22.11.2021 23:46
Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“ Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag. Erlent 22.11.2021 22:37
„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“ Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“. Erlent 22.11.2021 15:53
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. Erlent 22.11.2021 15:19
Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil. Erlent 22.11.2021 14:59
Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. Erlent 22.11.2021 14:05
Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. Erlent 22.11.2021 13:05
Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 22.11.2021 12:03
Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. Erlent 22.11.2021 11:50
SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust. Erlent 22.11.2021 11:50
Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði. Erlent 22.11.2021 10:28
Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði. Erlent 22.11.2021 07:40
Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. Erlent 22.11.2021 07:00
Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. Erlent 22.11.2021 06:40
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. Erlent 21.11.2021 23:31
Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. Erlent 21.11.2021 22:54
Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit. Erlent 21.11.2021 16:51