Fréttir Ósátt með að fá ekki sæti í áhættunefnd borgarinnar Reykjavíkurborg hefur skipað áhættunefnd borgarinnar til að efla fjármálastjórn borgarinnar. Fulltrúar Sjálsfstæðisflokks eru ósáttir við að eiga ekki fulltrúa í nefndinni. Innlent 9.3.2024 23:34 Myndir: Selfyssingar syrgja sögufrægt hús Ljóst er að gríðarmikið tjón hefur orðið á sögufrægu Hafnartúnshússi á Selfossi. Húsið var byggt árið 1947 og hefur lengi verið eitt helsta kennileiti bæjarins. Innlent 9.3.2024 23:11 Varar við söfnun í nafni barna Hrafns Illugi Jökulsson hefur varað við því að óprúttnir aðilar hafi gefið sig að fólki á götum úti og sagst vera að safna peningum til styrktar barna rithöfundarins Hrafns Jökulssonar, bróður Illuga, sem féll frá í september 2022. Innlent 9.3.2024 22:35 Reglugerðafargan gerir smáframleiðendum erfitt fyrir Mikil fjölgun er í flóru smáframleiðenda á Íslandi, sem framleiða allskonar matvæli og selja beint frá býli. Reglugerðafargan gerir þó mörgum erfitt fyrir. Innlent 9.3.2024 22:04 „Mikil menningarverðmæti farin“ „Það stóð til að gera þetta hús upp sem hluta af nýjum miðbæ. Þetta er sögufrægt hús og þess vegna mikil menningarverðmæti farin,“ segir Leó Árnason stjórnarformaður Sigtúns sem á Gamla Hafnartúns-húsið á Selfossi, þar sem eldur kviknaði í kvöld. Slökkvistörf standa enn yfir en ljóst er að tjónið er mikið. Innlent 9.3.2024 20:46 Eldur í gamla Hafnartúnshúsinu á Selfossi Eldur logar í gamla Hafnartúnshúsinu á Selfossi. Töluverður viðbúnaður er á staðnum. Innlent 9.3.2024 19:48 Tveir sóttu um embætti héraðsdómara Þau Sindri M. Stephensen dósent við lagadeild HR og Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara sóttu um embætti héraðsdómara. Innlent 9.3.2024 19:40 Mikilvægt fyrir sálrænan bata að fá góðar móttökur Rauði krossinn býðst til þess að veita öllum sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum sem var bjargað út úr Gasasvæðinu á dögunum áfallahjálp. Sérfræðingur hjá samtökunum segir að geri megi ráð fyrir að flestir þeirra beri mörg áföll á bakinu og því sé mikilvægt fyrir sálrænan bata þeirra að Íslendingar taki vel á móti þeim. Innlent 9.3.2024 19:30 Gæsluvarðhald staðfest: „Gríðarlega miklar rannsóknir sem liggja að baki“ Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir sex sakborningum sem grunaðir eru um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem stendur eru níu sakborningar í málinu og mögulegt að þeir verði fleiri. Innlent 9.3.2024 19:13 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að nú sé búið að leggja grundvöll að launastefnu sem önnur stéttarfélög munu fylgja eftir. Fjögur félög bættust í hóp þeirra sem skrifað hafa undir kjarasamning í nafni stöðugleika. Talsmaður Fagfélaganna segir að nú sé boltinn hjá Seðlabankanum, ríki og sveitarfélögum. Fjallað verður um undirritun kjarasamninga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.3.2024 18:26 „Ótrúlega stolt og þakklát eftir daginn í dag“ Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist bæði stolt og þakklát eftir að undirritun kjarasamninga lauk í Karphúsinu í dag. Búið sé að leggja grunn að efnahagslegum stöðugleika. Viðræður við VR hefjast í næstu viku. Innlent 9.3.2024 17:51 Boltinn hjá Seðlabanka, fyrirtækjum, ríki og sveitarfélögum Samningur fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins var undirritaður í dag og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að allir þurfi að vera samstíga og að boltinn sé nú hjá Seðlabanka, fyrirtækjum landsins, ríki og sveitarfélögum. Innlent 9.3.2024 16:41 Ætluðu að eiga yndislegt kvöld en umræðan eyðilagði það Halla Tómasdóttir, forstjóri BTeam og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er hugsi yfir umræðunni á Íslandi sem hún varð vitni að í kringum Söngvakeppnina á RÚV fyrir viku. Hún vill forseta sem hjálpar þjóðinni að komast upp úr þessum sporum og íhugar alvarlega framboð. Innlent 9.3.2024 15:27 Svíar og Kanadamenn hefja greiðslur á ný Svíar og Kanadamenn hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) eftir að hafa fryst þær í kjölfar ásakana um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamasliða sjöunda október 2023. Erlent 9.3.2024 15:25 Fagfélögin skrifa undir kjarasamninga Fagfélögin hafa skrifað undir langtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Til fagfélaganna teljast Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís, VM og Grafía. Samningurinn er til fjögurra ára og byggir á sömu forsendum og langtímasamningar breiðfylkingar Eflingar, Samiðnar og SGS sem náðust fyrr í vikunni. Innlent 9.3.2024 15:00 Hundóánægðir bændur með reglugerð um sjálfbæra nýtingu Bændur landsins og fjölmargar sveitarstjórnir vítt og breitt um landið eru hundóánægðar með reglugerð úr samráðsgátt stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu í samræmi við markmikið laga um landgræðslu. Nái reglugerðin fram að ganga sé nánast gengið að sauðfjárbúskap dauðum. Innlent 9.3.2024 14:30 Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst. Innlent 9.3.2024 14:01 „Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir þetta kjaftæði“ Guðný Kristjánsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ og tengdadóttir rokkarans keflvíska Rúnars Júlíussonar segir meirihluta bæjarbúa vera ósáttan með ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að flytja bókasafn bæjarins í Hljómahöll og takmarka starfsemi Rokksafns Íslands. Hún segist munu berjast gegn áformum bæjarstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum. Innlent 9.3.2024 13:42 Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Rætt er við formann Neytendasamtakanna í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fréttir 9.3.2024 11:42 Vöfflujárnið komið í samband og penninn mundaður Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís og VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, stefna á að undirrita nýja kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins klukkan tvö í dag. Innlent 9.3.2024 11:42 Minnst fimmtán drónaárásum Húta afstýrt í nótt Danska freigátan Iver Huitfeld skaut niður fjóra dróna í nótt sem Hútar sendu út til að gera árás á það. Það kom fram í tilkynningu frá danska hernum frá í morgun. Minnst fimmtán drónar gerðu atlögu að skipaumferð sunnanvert í Rauðahafinu í nótt. Erlent 9.3.2024 10:49 Tvíburarannsókn sýnir sterk tengsl milli áfalla í æsku og geðraskana Rannsókn sem byggði á gögnum úr svokallaðri Tvíburaskrá Svíþjóðar hefur leitt í ljós að einstaklingar sem urðu fyrir áfalli í æsku voru 2,4 sinnum líklegri til að hafa verið greindir með geðsjúkdóm en þeir sem komust í gegnum æskuna áfallalaust. Innlent 9.3.2024 09:00 Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Innlent 9.3.2024 08:08 Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands. Innlent 9.3.2024 07:54 Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu. Innlent 9.3.2024 07:47 Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað. Innlent 9.3.2024 07:32 Munu fella fleiri aspir á Austurveginum Til stendur að fella fleiri aspir og fjarlægja ýmsan lággróður á miðeyju Austurvegar á Selfossi til að bæta umferðaröryggi. Ný tré verða gróðursett og blómakörum komið fyrir. Innlent 9.3.2024 07:00 Fjölgar um einn í hópi sakborninga Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel. Innlent 8.3.2024 23:51 Danir skuli forðast fjöldasamkomur vegna hryðjuverkahættu Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum. Erlent 8.3.2024 22:45 Bæjarstjórn Hornafjarðar endurskoðar gjaldskrárhækkanir Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykktu á fundi í gær að fella niður gjaldtöku fyrir skólamáltíðir í grunnskólum sveitarfélagsins. Einnig samþykkti bæjarstjórn að endurskoða gjaldskrár sveitarfélagsins á sama grunni. Innlent 8.3.2024 22:02 « ‹ 331 332 333 334 ›
Ósátt með að fá ekki sæti í áhættunefnd borgarinnar Reykjavíkurborg hefur skipað áhættunefnd borgarinnar til að efla fjármálastjórn borgarinnar. Fulltrúar Sjálsfstæðisflokks eru ósáttir við að eiga ekki fulltrúa í nefndinni. Innlent 9.3.2024 23:34
Myndir: Selfyssingar syrgja sögufrægt hús Ljóst er að gríðarmikið tjón hefur orðið á sögufrægu Hafnartúnshússi á Selfossi. Húsið var byggt árið 1947 og hefur lengi verið eitt helsta kennileiti bæjarins. Innlent 9.3.2024 23:11
Varar við söfnun í nafni barna Hrafns Illugi Jökulsson hefur varað við því að óprúttnir aðilar hafi gefið sig að fólki á götum úti og sagst vera að safna peningum til styrktar barna rithöfundarins Hrafns Jökulssonar, bróður Illuga, sem féll frá í september 2022. Innlent 9.3.2024 22:35
Reglugerðafargan gerir smáframleiðendum erfitt fyrir Mikil fjölgun er í flóru smáframleiðenda á Íslandi, sem framleiða allskonar matvæli og selja beint frá býli. Reglugerðafargan gerir þó mörgum erfitt fyrir. Innlent 9.3.2024 22:04
„Mikil menningarverðmæti farin“ „Það stóð til að gera þetta hús upp sem hluta af nýjum miðbæ. Þetta er sögufrægt hús og þess vegna mikil menningarverðmæti farin,“ segir Leó Árnason stjórnarformaður Sigtúns sem á Gamla Hafnartúns-húsið á Selfossi, þar sem eldur kviknaði í kvöld. Slökkvistörf standa enn yfir en ljóst er að tjónið er mikið. Innlent 9.3.2024 20:46
Eldur í gamla Hafnartúnshúsinu á Selfossi Eldur logar í gamla Hafnartúnshúsinu á Selfossi. Töluverður viðbúnaður er á staðnum. Innlent 9.3.2024 19:48
Tveir sóttu um embætti héraðsdómara Þau Sindri M. Stephensen dósent við lagadeild HR og Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara sóttu um embætti héraðsdómara. Innlent 9.3.2024 19:40
Mikilvægt fyrir sálrænan bata að fá góðar móttökur Rauði krossinn býðst til þess að veita öllum sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum sem var bjargað út úr Gasasvæðinu á dögunum áfallahjálp. Sérfræðingur hjá samtökunum segir að geri megi ráð fyrir að flestir þeirra beri mörg áföll á bakinu og því sé mikilvægt fyrir sálrænan bata þeirra að Íslendingar taki vel á móti þeim. Innlent 9.3.2024 19:30
Gæsluvarðhald staðfest: „Gríðarlega miklar rannsóknir sem liggja að baki“ Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir sex sakborningum sem grunaðir eru um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem stendur eru níu sakborningar í málinu og mögulegt að þeir verði fleiri. Innlent 9.3.2024 19:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að nú sé búið að leggja grundvöll að launastefnu sem önnur stéttarfélög munu fylgja eftir. Fjögur félög bættust í hóp þeirra sem skrifað hafa undir kjarasamning í nafni stöðugleika. Talsmaður Fagfélaganna segir að nú sé boltinn hjá Seðlabankanum, ríki og sveitarfélögum. Fjallað verður um undirritun kjarasamninga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.3.2024 18:26
„Ótrúlega stolt og þakklát eftir daginn í dag“ Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist bæði stolt og þakklát eftir að undirritun kjarasamninga lauk í Karphúsinu í dag. Búið sé að leggja grunn að efnahagslegum stöðugleika. Viðræður við VR hefjast í næstu viku. Innlent 9.3.2024 17:51
Boltinn hjá Seðlabanka, fyrirtækjum, ríki og sveitarfélögum Samningur fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins var undirritaður í dag og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að allir þurfi að vera samstíga og að boltinn sé nú hjá Seðlabanka, fyrirtækjum landsins, ríki og sveitarfélögum. Innlent 9.3.2024 16:41
Ætluðu að eiga yndislegt kvöld en umræðan eyðilagði það Halla Tómasdóttir, forstjóri BTeam og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er hugsi yfir umræðunni á Íslandi sem hún varð vitni að í kringum Söngvakeppnina á RÚV fyrir viku. Hún vill forseta sem hjálpar þjóðinni að komast upp úr þessum sporum og íhugar alvarlega framboð. Innlent 9.3.2024 15:27
Svíar og Kanadamenn hefja greiðslur á ný Svíar og Kanadamenn hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) eftir að hafa fryst þær í kjölfar ásakana um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamasliða sjöunda október 2023. Erlent 9.3.2024 15:25
Fagfélögin skrifa undir kjarasamninga Fagfélögin hafa skrifað undir langtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Til fagfélaganna teljast Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís, VM og Grafía. Samningurinn er til fjögurra ára og byggir á sömu forsendum og langtímasamningar breiðfylkingar Eflingar, Samiðnar og SGS sem náðust fyrr í vikunni. Innlent 9.3.2024 15:00
Hundóánægðir bændur með reglugerð um sjálfbæra nýtingu Bændur landsins og fjölmargar sveitarstjórnir vítt og breitt um landið eru hundóánægðar með reglugerð úr samráðsgátt stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu í samræmi við markmikið laga um landgræðslu. Nái reglugerðin fram að ganga sé nánast gengið að sauðfjárbúskap dauðum. Innlent 9.3.2024 14:30
Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst. Innlent 9.3.2024 14:01
„Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir þetta kjaftæði“ Guðný Kristjánsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ og tengdadóttir rokkarans keflvíska Rúnars Júlíussonar segir meirihluta bæjarbúa vera ósáttan með ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að flytja bókasafn bæjarins í Hljómahöll og takmarka starfsemi Rokksafns Íslands. Hún segist munu berjast gegn áformum bæjarstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum. Innlent 9.3.2024 13:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Rætt er við formann Neytendasamtakanna í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fréttir 9.3.2024 11:42
Vöfflujárnið komið í samband og penninn mundaður Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís og VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, stefna á að undirrita nýja kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins klukkan tvö í dag. Innlent 9.3.2024 11:42
Minnst fimmtán drónaárásum Húta afstýrt í nótt Danska freigátan Iver Huitfeld skaut niður fjóra dróna í nótt sem Hútar sendu út til að gera árás á það. Það kom fram í tilkynningu frá danska hernum frá í morgun. Minnst fimmtán drónar gerðu atlögu að skipaumferð sunnanvert í Rauðahafinu í nótt. Erlent 9.3.2024 10:49
Tvíburarannsókn sýnir sterk tengsl milli áfalla í æsku og geðraskana Rannsókn sem byggði á gögnum úr svokallaðri Tvíburaskrá Svíþjóðar hefur leitt í ljós að einstaklingar sem urðu fyrir áfalli í æsku voru 2,4 sinnum líklegri til að hafa verið greindir með geðsjúkdóm en þeir sem komust í gegnum æskuna áfallalaust. Innlent 9.3.2024 09:00
Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Innlent 9.3.2024 08:08
Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands. Innlent 9.3.2024 07:54
Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu. Innlent 9.3.2024 07:47
Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað. Innlent 9.3.2024 07:32
Munu fella fleiri aspir á Austurveginum Til stendur að fella fleiri aspir og fjarlægja ýmsan lággróður á miðeyju Austurvegar á Selfossi til að bæta umferðaröryggi. Ný tré verða gróðursett og blómakörum komið fyrir. Innlent 9.3.2024 07:00
Fjölgar um einn í hópi sakborninga Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel. Innlent 8.3.2024 23:51
Danir skuli forðast fjöldasamkomur vegna hryðjuverkahættu Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum. Erlent 8.3.2024 22:45
Bæjarstjórn Hornafjarðar endurskoðar gjaldskrárhækkanir Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykktu á fundi í gær að fella niður gjaldtöku fyrir skólamáltíðir í grunnskólum sveitarfélagsins. Einnig samþykkti bæjarstjórn að endurskoða gjaldskrár sveitarfélagsins á sama grunni. Innlent 8.3.2024 22:02